10/11 löggan dæmd fyrir líkamsárás 5. desember 2008 16:01 Lögreglumaðurinn tók harkalega á piltinum. Mynd af YouTube.
Lögreglumaður sem handtók 17 ára pilt og handjárnaði í verslun 10/11 í Grímsbæ í Reykjavík í vor, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, dæmdur fyrir líkamsárás. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða 120 þúsund króna sekt í ríkissjóðs og til að greiða piltinum 60 þúsund krónur í miskabætur. Málavextir voru þeir að mánudagskvöldið 26. maí var lögreglumaðurinn og samstarfsmaður hans sendir að verslun 10/11 í Grímsbæ við Bústaðaveg. Þaðan hafði borist tilkynning vegna gruns um þjófnað. Segir í skýrslu sem lögreglumaðurinn ritar að í tilkynningunni hafi komið fram að starfsmönnum verslunarinnar stæði stuggur af hópi fólks sem væri á vettvangi ásamt hinum grunaða. Er lögreglumennirnir komu á vettvang var þeim bent á hinn sautján ára gamla pilt sem var þar ásamt hópi fólks og kváðust starfsmenn verslunarinnar gruna hann um að hafa stolið tyggjópakka. Pilturinn var beðinn um að tæma vasa sína en brást við með því að hreyta fúkyrðum í lögreglumanninn, sem leiddi til þess að lögreglumaðurinn tók harkalega á piltinum. Segir héraðsdómur að lögreglumaðurinn hafi gert atlögu að piltnum sem hvorki hafi verið sýnt fram á að tengdist leit á honum né heldur hafi verið sýnt fram á að átt hafi að handtaka hann. Héraðsdómur segir því að um hafi verið að ræða líkamsárás sem að öllum líkindum hafi verið viðbrögð við orðum piltsins.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Innlent Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sjá meira