Þrettán þúsund króna hrekkur í Morgunblaðinu 10. desember 2008 13:23 Dánartilkynningin sem birtist í Morgunblaðinu.
Það kostar rúmar 13 þúsund krónur að fá dánartilkynningu birta í Morgunblaðinu, segir Gylfi Þór Þorsteinsson, auglýsingastjóri blaðsins. Í morgun birtist tilkynning um að Hákon Rúnar Jónsson væri látinn. Síðar um morguninn birtist svo frétt á fréttavef Morgunblaðsins þar sem sagt var frá því að fréttir af andláti Hákonar væru stórlega ýktar. Gylfi vill ekki segja til um hver pantaði auglýsinguna. Hann segir það meginreglu að gefa ekki upp nöfn þeirra sem panti auglýsingar hjá blaðinu, hvort sem um ræði dánartilkynningu eða annað efni. Gylfi Þór segir að það sé erfitt að breyta verkreglum við meðferð dánartilkynninga, þrátt fyrir þetta atvik. „Það er voðalega erfitt að eiga við þetta. Vegna þess að við getum ekki farið fram á dánarvottorð, vegna þess að það er ekki alltaf tilbúið þegar að fólk vill að dánartilkynningin birtist," segir Gylfi. Hann segir þó að reynt sé eftir fremsta megni að sannreyna þær upplýsingar sem að blaðinu berist. Í þessu umrædda tilfelli hafi greiðandinn til dæmis verið skráður á rétt heimilisfang samkvæmt þjóðskrá og allt litið eðlilega út. „Þannig að þetta var svona einbeittur brotavilji," segir Gylfi. Sé hins vegar eitthvað grunsamlegt í auglýsingunum að þá sé reynt að kanna það mál. „Það er náttúrulega bara ömurlegt að menn séu þannig innrættir að þeir misnoti þessar tilkynningar með þessum hætti," segir Gylfi.
Tengdar fréttir Fregnir af andláti fanga stórlega ýktar Undarlegt mál er komið upp í fangelsinu á Litla - Hrauni en í Morgunblaðinu í dag er sagt frá andláti Hákons Rúnars Jónssonar, refsifanga. Hákon er sagður hafa látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningingsnúmer. Þetta kom forsvarsmönnum Litla - Hrauns í opna skjöldu enda amar ekkert að Hákoni. 10. desember 2008 12:01 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira
Fregnir af andláti fanga stórlega ýktar Undarlegt mál er komið upp í fangelsinu á Litla - Hrauni en í Morgunblaðinu í dag er sagt frá andláti Hákons Rúnars Jónssonar, refsifanga. Hákon er sagður hafa látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningingsnúmer. Þetta kom forsvarsmönnum Litla - Hrauns í opna skjöldu enda amar ekkert að Hákoni. 10. desember 2008 12:01