Bíó og sjónvarp

Dauð­vona að­dáandi fékk að sjá nýjustu Stjörnu­stríðs­myndina fyrir frum­­sýningu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Rey er ein af aðalpersónum nýjasta þríleiksins og mun vafalaust spila stórt hlutverk í næstu mynd.
Rey er ein af aðalpersónum nýjasta þríleiksins og mun vafalaust spila stórt hlutverk í næstu mynd. Skjáskot
Afþreyingarrisinn Disney varð í vikunni við ósk dauðvona ofur-aðdáanda Stjörnustríðsmyndanna (e. Star Wars), um að fá að sjá nýjustu myndina í kvikmyndaflokknum. Myndin, sem ber heitið „Star Wars: Rise of Skywalker“ verður frumsýnd 19. desember og er beðið með eftirvæntingu um allan heim af þeim fjölmörgu aðdáendum sem myndaflokkurinn á. Óvíst er hvort maðurinn hefði lifað til að sjá myndina á þeim tíma. CNN greinir frá þessu.

Líknarselið Rowans Hospice í Bretlandi birti á þriðjudaginn færslu á Twitter þar sem óskað var eftir hjálp netverja um að koma ósk ónafngreinds sjúklings hjá þeim til skila.

„Við erum með sjúkling sem er risastór Stjörnustríðsaðdáandi. Því miður er tíminn honum ekki hliðhollur. Hann langar að sjá síðustu Stjörnustríðsmyndina, Rise of Skywalker, með ungum syni sínum,“ stóð meðal annars í færslunni.





Færslan fékk gríðarleg viðbrögð og meðal þeirra sem fleyttu skilaboðunum áfram var Mark Hamill, sem farið hefur með hlutverk Loga Geimgengils í myndunum, við góðan orðstír.

Bob Iger, stjórnarformaður og forstjóri Disney, tísti síðan á fimmtudag að fyrirtækið myndi verða við ósk mannsins.

„Þessa þakkargjörðarhátíð, erum við hjá Disney þakklát að geta deilt Rise of Skywalker með sjúklingi og fjölskyldu hans. Megi mátturinn vera með ykkur og okkur öllum,“ skrifaði Iger á Twitter og beindi orðum sínum að líknardeildinni.





Í yfirlýsingu frá líknardeildinni sagði Lisa Davies, starfsmaðurinn sem kom ósk sjúklingsins til annarra starfsmanna deildarinnar, að hún væri „algerlega orðlaus.“

„Við kunnum ótrúlega vel að meta að þau [hjá Disney] hafi lagt allt á sig til þess að gera þetta að veruleika.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×