„Klopp er að fara á taugum“ Anton Ingi Leifsson skrifar 5. mars 2019 09:00 Klopp á línunni um helgina. vísir/getty
Hegðun Jurgen Klopp og skiptingar hans í leiknum gegn Everton sýna að hann er að fara á taugum í baráttunni á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Þetta segir sparkspekingurinn Paul Merson. Klopp lenti í orðaskakki við blaðamann eftir 0-0 jafnteflið gegn Everton á sunnudaginn sem gerir það að verkum að Manchester City er komið með eins stigs forskot á toppi deildarinnar. „Jurgen Klopp er að fara á taugum,“ sagði Merson í þættinum The Debate sem fer fram á mánudagskvöldum á Sky Sports. „Að byrja tala eitthvað um Manchester City á hans blaðamannafundi.. ekki hugsa um Manchester City, hugsaðu bara um hvað þú sjálfur ert að gera.“Is pressure setting into #LFC? Watch #TheDebate on Sky Sports Premier League now. pic.twitter.com/LJOA5UvGM8 — Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) March 4, 2019 „Panikkið sýnir sig í skiptingunum. Að setja Adam Lallana inn fyrir Sadio Mane. Þú þurftir að vinna þennan leik. Everton voru aldrei að fara vinna leikinn. Þeir voru ánægðir með stigið.“ „Svo kom James Milner inn á. Mér líkar vel við Milner en þú þurftir að vinna leikinn. Þú varst með Daniel Sturrdige og Xherdan Shaqiri á bekknum. Ég hef verið stjóri sjálfur og þú situr stundum og hugsar eftir leikinn: Þetta hefði ég ekki átt að gera.“ Mohamed Salah hefur verið í sviðsljósinu undanfarnar vikur og þá ekki fyrir góða frammistöðu því Egyptinn hefur einungis skorað eitt mark í sex síðustu leikjum sínum. Merson hefur ekki bara áhyggjur af Salah heldur öllu sóknartríói Liverpool. „Þeir líta út fyrir að vera stressaðir. Þeir verða að fara aftur að spila með sama frjálsfræði og brosi og þeir gerðu í uppafi tímabils. Þeir þurfa að hætta vera stressaðir því þeir munu ekki fá mörg mörk á sig útaf frábærri vörn.“ „Manchester City vinnur ekki alla níu leiki sína. Ég verð mjög hissa ef þeir vinna alla níu leikina,“ en City er einu stigi á undan Liverpool er níu umferðir eru óleiknar.
Fótbolti Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Sjá meira