Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Hjörvar Ólafsson skrifar 24. október 2026 15:48 Breiðablik - ÍA Bestadeild karla 2026 vísir/Guðmundur ÍA og Keflavík skildu jöfn,4-4, þegar liðin leiddu saman hesta sína í Akraneshöllina í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta í dag. Markús Páll Ellertsson, sem valinn var efnilegasti leikmaður deildarinnar, kom Skagamönnum yfir eftir um það bil tíu mínútna leik. Gísli Laxdal Unnarsson lagði þá boltann út á Markús Pál sem skoraði með hnitmiðuðu skoti. Markús Páll skoraði þarna sitt 15. mark í deildinni á þessari leiktíð en hann endaði sem næst markahæsti leikmaður deildarinnar á eftir Aron Sigurðarsyni. Alpha Conteh jafnaði svo metin fyrir Keflavík skömmu síðar með stórglæsilegu marki. Gísli Laxdal Unnarsson endurheimti síðan forystuna fyrir Skagamenn um miðbik fyrri hálfleiks. Viktor Jónsson renndi þá boltanum á Gísla Laxdal sem kláraði færið með snotru skoti. Skagamenn hafna þar af leiðandi í fjórða sæti deildarinnar sem er besti árangur liðsins frá árinu 2007. Keflavík hafði þegar náð sínum besta árangri frá árinu 2010. Besta deild karla ÍA Keflavík ÍF
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“
Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Íslenski boltinn
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Íslenski boltinn