Upp­gjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og marka­met í Vestur­bænum

Katla Margrét Jónsdóttir skrifar
Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk í dag og bætti þar með markametið í deildinni.
Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk í dag og bætti þar með markametið í deildinni. vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Það var boðið upp á sannkallaða markaveislu í Vesturbænum þegar KR og Breiðablik mættust í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Áhorfendur fengu svo sannarlega nóg fyrir peninginn, ellefu mörk og nýtt markamet Arons Sigurðarsonar.

Fyrri viðureignir liðanna í sumar höfðu gefið fyrirheit um fjör. Blikar unnu 6–3 á heimavelli áður en liðin gerðu 3–3 jafntefli á Meistaravöllum. Eftir fimmtán mörk í þeim tveimur leikjum bættu liðin ellefu við í dag og slógu þannig botninn í tímabilið með látum.

KR endar í öðru sæti í deildinni með 56 stig en hver sem úrslit leiksins í dag hefðu verið hefðu þau ekki haft áhrif á það. Blikar enda hins vegar deildina í fimmta sæti með 36 stig.

Augu margra beindust að Aroni Sigurðarsyni fyrir leikinn, en hann þurfti að skora tvö mörk til að slá markamet Benonýs Breka Andréssonar í efstu deild karla. Biðin eftir metinu hafði lengst og hafði Aron gengið af velli án þess að skora í síðustu leikjum, en fyrir leikinn í dag hafði hann ekki skorað síðan í ágúst. Hann fann hins vegar markaskóna á ný gegn Blikum, skoraði mörkin tvö sem til þurfti og skrifaði nafn sitt í sögubækurnar.

KR-ingar klára ótrúlegt markatímabil í dag með því að brjóta níutíu marka múrinn í 8-3 sigri á Breiðabliki í Vesturbænum í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Markaveislan hófst á 11. mínútu þegar Aron Sigurðarson kom KR yfir og jafnaði um leið markamet Benonýs Breka Andréssonar. Arnór Ingvi Traustason fékk boltann úti hægra megin og sendi fyrir á Aron sem þrumaði honum í fjærhornið.

Blikar svöruðu tíu mínútum síðar þegar Dagur Örn Fjeldsted þrumaði boltanum í netið eftir sendingu þvert yfir völlinn frá Þorleifi Úlfarssyni.

KR-ingar voru þó fljótir að endurheimta forystuna. KR-ingurinn Sigurður Breki Kárason var svo í aðalhlutverki í næstu þremur mörkum leiksins. Á 27. mínútu skaut hann í varnarmann en fékk boltann aftur fyrir fæturna og vippaði honum laglega yfir markvörð Blika. Tveimur mínútum síðar var hann aftur á ferðinni og kom KR í 3–1.

Á 35. mínútu rataði boltinn hins vegar í eigið net af Sigurði Breka. Sjálfsmarkið minnkaði muninn í 3–2 og hleypti Blikum aftur inn í leikinn.

Galdur Guðmundsson kom KR í 4–2 á 42. mínútu eftir frábæra stoðsendingu frá Sigurði Breka Kárasyni. Galdur slapp einn í gegn og lagði boltann yfirvegað fram hjá markverði Blika. Þannig stóðu leikar í hálfleik.

KR-ingar héldu uppteknum hætti eftir hlé. Á 51. mínútu kom Arnór Ingvi Traustason þeim í 5–2 þegar hann afgreiddi boltann í netið í fyrstu snertingu eftir sendingu frá Sigurði Breka Kárasyni.

Örlítið hægðist á leiknum í kjölfarið en KR var hvergi nærri hætt. Á 71. mínútu var Sigurður Breki enn á ný arkitektinn þegar hann lagði boltann á Fannar Heimisson sem kláraði færið yfirvegað og kom heimamönnum í 6–2.

Blikar svöruðu tveimur mínútum síðar. Aron Bjarnason kom boltanum á Birki Þorsteinsson sem keyrði að marki KR og skoraði fram hjá Arnari.

Staðan því orðin 6–3. Blikum tókst að nýta sér að fáir KR-ingar hafi verið til varnar. Birki tókst að bruna að marki KR-inga og afgreiða færið snyrtilega fram hjá markverði KR-inga.

Stóra stundin rann svo upp á 89. mínútu. Sölvi Snær Ásgeirsson komst upp að endamörkum og lagði boltann út á Aron Sigurðarson sem afgreiddi hann í netið í fyrstu snertingu. Með markinu sló Aron markamet efstu deildar karla á einu tímabili og skrifaði nafn sitt í sögubækurnar.

Galdur Guðmundsson rak svo síðasta naglann í kistu Blika á 90. mínútu þegar hann skoraði áttunda mark KR og innsiglaði 8–3 stórsigur heimamanna.

Atvik leiksins

Augnablik leiksins kom á 89. mínútu þegar Aron Sigurðarson skoraði sitt annað mark og sló markamet efstu deildar karla á einu tímabili. Sölvi Snær Ásgeirsson lagði boltann út á Aron sem afgreiddi hann í netið í fyrstu snertingu. Söguleg stund í Vesturbænum og viðeigandi endir á mögnuðu markatímabili Arons.

Stjörnur og skúrkar

Aron Sigurðarson stal sviðsljósinu með mörkunum tveimur og nýju markameti. Sigurður Breki Kárason var þó ekki síður áberandi í sóknarleik KR. Hann skoraði tvívegis og lagði upp þrjú mörk, þótt hann yrði einnig fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Galdur Guðmundsson lét sömuleiðis til sín taka með tveimur mörkum.

Varnarleikur Blika fær hins vegar skúrkahlutverkið. Gestirnir réðu illa við samspil heimamanna og skildu KR-inga ítrekað eftir lausa í hættulegum stöðum. Átta mörk fengin á sig segja sína sögu.

Dómarinn

Sigurður Hjörtur Þrastarson var á flautunni og honum til aðstoðar voru Birkir Sigurðarson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Dómarateymið komst vel frá sínu og engir stórir dómar urðu að deiluefni.

Stemning og umgjörð

Áhorfendur fengu sannarlega nóg fyrir peninginn á Meistaravöllum. Ellefu mörk og sögulegt markamet settu svip sinn á lokaumferðina. Stuðningsmenn KR létu vel í sér heyra, sungu og trölluðu á meðan þeirra menn röðuðu inn mörkunum. Öllu þyngra var yfir stuðningsmönnum Blika sem höfðu úr litlu að gleðjast. Heimamenn kvöddu tímabilið með látum og Aron sá til þess að leiksins verður lengi minnst í Vesturbænum.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KRVísir/Anton

Óskar Hrafn: „Það krefst þess að menn séu ekki saddir“

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var ánægður með hvernig hans menn luku tímabilinu eftir 8–3 stórsigur á Breiðabliki á Meistaravöllum í lokaumferð Bestu deildar karla. Hann segir framtíðina bjarta í Vesturbænum en mikil vinna sé fram undan við að brúa bilið upp í Víking.

KR-ingar skoruðu fjögur mörk í hvorum hálfleik og sagði Óskar liðið hafa nálgast verkefnið með sama hætti og aðra leiki sumarsins.

„Við lögðum hann bara upp eins og við höfum lagt alla leiki sumars, að reyna að ná frumkvæði í leiknum og reyna að stjórna hraðanum og hafa þetta sem hraðastan leik.“

Hann var sérstaklega ánægður með sóknarleikinn en fannst kæruleysi gera vart við sig nær eigin marki.

„Við sköpuðum okkur gríðarlegan fjölda af færum og nýttum nokkur þeirra, og það endaði í átta mörkum. Mér fannst við vera kærulausir á köflum á okkar varnarþriðjungi þegar við misstum boltann, fullkærulausir á köflum. En mér fannst við meiriháttar góðir þegar við vorum komnir inn á síðasta þriðjung.“

Óskar sagði leikinn hafa verið sérstakan og tók sjálfsmark Sigurðar Breka Kárasonar, sem minnkaði muninn í 3–2, sem dæmi um stemninguna.

„Þetta var skrýtinn leikur. Við sjáum það á 2–3 markinu þegar Sigurður Breki gerir sjálfsmark og þá varð allt eins og jarðarför. Það var eins og ekkert hefði gerst. Arnar hefði getað sótt boltann í markið og byrjað upp á nýtt og enginn hefði sagt neitt.“

Hvorugt lið hefði haft að miklu að keppa hvað stöðuna í deildinni varðaði, en annað hefði verið undir.

„Þetta var auðvitað skrýtin stemning. Hvorugt lið hafði einhvern veginn að einhverju að keppa nema auðvitað stoltinu og virðingunni. Virðingunni fyrir sjálfum sér og virðingunni fyrir mótinu. Mér fannst við klára þetta vel.“

Mikil vinna við að minnka bilið

Óskar telur KR hafa tekið skref fram á við frá síðasta tímabili. Annað sætið sé góður árangur en jafnframt sé ljóst hvert næsta verkefni sé.

„Tímabilið í heild sinni verður að teljast gott. Það er fullt sem hægt er að bæta. Auðvitað þegar þú ert kominn í þessa stöðu að þú sért í öðru sæti og það er lið fyrir framan þig sem heitir Víkingur, þá er auðvitað vinnan fram undan við að minnka bilið á milli Víkings og KR.“

Það sé þó hægara sagt en gert.

„Það er auðvelt að standa fyrir framan míkrófóninn og segja það en erfiðara að framkvæma. Það er gríðarleg vinna, fótboltaleg og andleg, sem þarf að eiga sér stað í vetur til að það verði að veruleika.“

Hann horfir engu að síður björtum augum til framhaldsins, svo lengi sem leikmenn láti ekki staðar numið.

„Ef við höfum drifkraftinn, hungrið og dugnaðinn til að byggja ofan á þetta, þá myndi ég segja að það væri mjög bjart yfir Vesturbænum. En það krefst þess að menn séu ekki saddir, að þeir séu ekki ánægðir með annað sætið, Evrópu og þess háttar, heldur séu sífellt að reyna að verða betri sem einstaklingar og lið.“

Óskar efast ekki um að viljinn til þess sé til staðar.

„Það er eina leiðin fyrir okkur til þess að halda áfram. Ég efast ekkert um það. Hungrið er til staðar hjá þessu liði. Framtíðin er björt.“

„Við viljum skemmta fólki“

Markaskorunin barst einnig í tal og sagði Óskar hana endurspegla þá nálgun sem KR hefði haft að leiðarljósi í sumar.

„Við viljum skemmta fólki og það skemmtilegasta við fótbolta er að skora mörk. Við erum bara mjög sáttir með uppskeruna.“

Verkefnið í vetur verði hins vegar einnig að fækka mörkunum sem liðið fær á sig.

„Við þurfum hins vegar að finna leiðir til þess að forða boltanum aðeins oftar úr okkar eigin marki. Það er vinnan þá á komandi vetri.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira