Enski boltinn

United hættir við Dybala-Lukaku skiptin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dybala hefur leikið með Juventus síðan 2015.
Dybala hefur leikið með Juventus síðan 2015. vísir/getty
Paolo Dybala, framherji Juventus, er ekki á förum til Manchester United.

Enskir fjölmiðlar greina frá því að United hafi haft efasemdir um að Dybala hafi viljað fara til félagsins.

Þá hafi launakröfur hans verið of háar og umboðsmaður hans heimtað of mikinn pening.

Dybala átti að fara til United í skiptum fyrir Romelu Lukaku. Argentínumaðurinn hafði hins vegar takmarkaðan áhuga á að fara til United og vildi frekar berjast fyrir sæti sínu í liði Juventus.

Samherji Dybalas hjá Juventus, Mario Mandzukic, gæti hins vegar verið á leið til United.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×