Enski boltinn

Sást til Maguire í Manchester á leið á æfingasvæði Man. Utd

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bless, bless segir Maguire við stuðningsmenn Leicester.
Bless, bless segir Maguire við stuðningsmenn Leicester. vísir/getty
Harry Maguire, varnarmaður Leicester, sem er við það að semja við Manchester United hefur sést á götum Manchester-borgar sem ýtir undir það að hann sé að semja við félagið.

Varnarmaðurinn knái sást yfirgefa hótel í miðborg Manchester í morgun en bíllinn fór með hann á æfingasvæði Manchester United, Carrington.







Sky Sports hafa heimildir fyrir því að verðmiðinn á Maguire sé 80 milljónir punda sem gerir hann að dýrasti varnarmanni í sögunni.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man. Utd, sagði í samtali við fjölmiðla í gær að hann vonaðist eftir því að félagið myndi ná að kynna Maguire mjög fljótlega.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×