Innlent

Lögregla þurfi að upplýsa þolendur

Ari Brynjólfsson skrifar
Frá ráðstefnunni í gær.
Frá ráðstefnunni í gær.
Lögreglu verður skylt að upplýsa þolanda kynferðisbrots um framgang málsins meðan á rannsókn stendur og fær réttargæslumaður að spyrja ákærða spurninga fyrir dómi. Þetta er meðal tillagna stýrihóps um úrbætur að því er varðar kynferðislegt ofbeldi.

Hildur Fjóla Antons­dóttir, doktorsnemi í réttar­félagsfræði, kynnti tillögurnar á ráðstefnu um réttarstöðu þolenda kynferðisofbeldis í Háskólanum í Reykjavík.

„Að vita lítið eða ekkert um framgang lögreglurannsóknar getur valdið brotaþolum miklum kvíða og óöryggi, og jafnvel sett þá í hættu. Þetta getur verið langt angistarferli,“ sagði Hildur Fjóla, en hún hefur rannsakað málið með viðtölum við þolendur. Það sé ekki aðeins niðurstaða sakamáls sem skipti þolendur máli heldur hvernig staðið sé að málinu. Benti hún á að nú sé það ekki skylda af hálfu lögreglu að upplýsa þolanda um framgang málsins og getur það leitt til þess að þolandi veit ekkert hvar málið er statt fyrr en það er ýmist fellt niður eða dómur fellur. Nefndi hún einnig að þolendur hefðu viljað sitja í réttarsal þegar ákærði ber vitni.

Í erindi sínu nefndi Hildur Fjóla að í Noregi hafi staða þolenda verið styrkt árið 2008. Er það nú grunnskilyrði að þolendur hafi eitthvað að segja um mál sem þeir eiga aðild að. Má brotaþoli nú bera vitni við byrjun réttarhalda og því sitja í gegnum þau öll. Einnig getur réttargæslumaður spurt spurninga fyrir hönd þolanda og fær þolandi einnig að ávarpa dóminn. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir dómsmálaráðherra fór yfir aðgerðir stjórnvalda á fundinum. Sagði hún það skýran vilja að taka á málum þolenda kynferðis­afbrota af festu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×