Lífið

Ryð á Costco-fílnum og gíraffanum: Ekki að á­stæðu­lausu að þessi dýr lifa ekki á norður­slóðum

Atli Ísleifsson skrifar
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fékk Costco-fílinn að gjöf sumarið 2017. Aðeins er farið að falla á fílinn.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fékk Costco-fílinn að gjöf sumarið 2017. Aðeins er farið að falla á fílinn. Vísir/Atli

Ryð er tekið að setjast á Costco-fíllinn sem staðsettur er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og Costco-gíraffann sem stendur tignarlegur í bakgarði í Hlíðunum í Reykjavík.



Fáar vörur vöktu eins mikla athygli og fíllinn og gíraffinn þegar Costco opnaði verslun sína í Kauptúni í Garðabæ þann 23. maí 2017.



Þorkell Heiðarsson, framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, segir að aðeins sé farið að falla á fílinn. „Þetta er engu að síður útilistaverk og ég hugsa að hann verði bara bráðfallegur, svona ryðgaður og brúnn,“ segir Þorkell.



Hann segir að Costco hafi fært Fjölskyldu- og húsdýragarðinum að gjöf sumarið 2017. Fíllinn stendur nú á bakvið veitingasöluna í Húsdýragarðinum og geta gestir garðsins virt hann fyrir sér út um gluggana þar.



„Við þáðum fílinn á sínum tíma undir þeim formerkjum að um útilistaverk væri að ræða. Við erum með takmarkað pláss í garðinum en við vonumst til að hægt verði að koma honum fyrir á betri stað,“ segir Þorkell.

Gunnar Páll ánægður með Costco-gíraffann sem hann keypti í tilefni af fertugsafmæli sínu sumarið 2017.Aðsend

Eins og rjúpan

Gunnar Páll Tryggvason, íbúi í Hlíðunum sem fjárfesti í Costco-gíraffanum á sínum tíma, segir að gíraffinn sé líkt og fíllinn farinn að ryðga.



„Það er ekki að ástæðulausu að þessi dýr lifa ekki á norðurslóðum. Þetta er greinilega ekki þeirra náttúrulega umhverfi. En þessi gíraffi virðist vera eins og rjúpan og er að skipta um ham. Hann endar kannski bara eins og flakið af flugvélinni á Sólheimasandi,“ segir Gunnar Páll.

Gíraffinn var frumsýndur á heimili Gunnars Páls í garðveislu sumarið 2017 þar sem verið var að halda upp á fertugsafmæli hans og fimmtán ára brúðkaupsafmæli hans og eiginkonu hans. Í viðtali við Sindra Sindrason á síðasta ári greindi Gunnar Páll frá því að gíraffinn hafi fengið nafnið Sigtryggur.



Í viðtali við Vísi sagði hann að hann hafi ákveðið á staðnum í Costco að fjárfesta í gíraffanum og að græni garður fjölskyldunnar gæti orðið gott og náttúrulegt heimili fyrir þessa veru. „Þetta myndi svo líka gleðja gestina, okkar nánustu fjölskyldu og vinum, og tryggja að þetta yrði gott partý,“ sagði Gunnar Páll.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×