Sami verktaki gleymdi fötluðu stúlkunni 2015 Sigurður Mikael Jónsson skrifar 3. mars 2018 07:30 Fötluð kona gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra í vikunni. Vísir/stefán
Bílstjóri sem gleymdi mikið fatlaðri konu í bíl ferðaþjónustu fatlaðra á þriðjudag vinnur fyrir sama fyrirtæki og gleymdi 18 ára stúlku í sjö klukkustundir 2015. Þetta staðfestir framkvæmdastjóri Strætó bs. sem telur þó að líklega sé aðeins tilviljun að svo hafi hitt á. Eina skýringin sem fundist hafi á atvikinu í vikunni sé einbeitingarleysi bílstjóra. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., segir að farið hafi verið yfir málið strax þegar það kom upp. Svo virðist sem allt hafi farið úrskeiðis, ekki hafi verið farið eftir leiðbeiningum og verklagsreglum svo brýna þurfi fyrir verktökum sem sinna Ferðaþjónustu fatlaðra fyrir Strætó bs. að fræða starfsmenn sína. „Það er ekki hægt að segja að leiðbeiningarnar séu óskýrar eða tækin og tólin ófullnægjandi. Það er óskiljanlegt hvernig svona getur gerst enda erum við með tæki þar sem fólk er stimplað inn og út úr bílnum, bílarnir eru litlir þannig að yfirsýn yfir bílinn ætti að vera auðveld. Þetta er óskiljanlegt atvik og svo sem engin ein skýring. Við finnum ekki aðra skýringu en að þarna hafi ákveðið einbeitingarleysi átt sér stað. Aðspurður hvort viðkomandi bílstjóri hafi verið sendur í leyfi vegna málsins segir Jóhannes að fyrirtækið tjái sig ekki um slíkt. Fyrirtækið sem um ræðir heitir All Iceland Tours, einn 20 verktaka sem sinnir akstri fatlaðra fyrir Strætó. Aðspurður hvort tilefni sé til að endurskoða þjónustu þess fyrirtækis, í ljósi þess að þetta er í annað skipti sem fötluð kona gleymist í bílum þess, segir Jóhannes að leiðbeiningar hafi verið ítrekaðar við alla verktaka og mælst til þess að þeir fari ítarlega yfir þær, verklagsreglur og viðbragðsáætlun áður en þeir sendi menn af stað í keyrslu. „Það er það sem við gerðum gagnvart öllum í þessu ferli. En það er líklega bara tilviljun að þetta kemur svona upp.“ Jóhannes kveðst ekki hafa heyrt af mikilli starfsmannaveltu hjá fyrirtækjunum sem sinna akstrinum, í það minnsta ekki óeðlilegar tölur. Vissulega hafi menn haldist illa í þessu starfi eftir byrjunarörðugleikana 2015, álagið hafi verið mikið og öll mistök ratað í fjölmiðla sem ekki allir hafi höndlað. „Okkur sýnist við vera með nokkuð reyndan hóp í þessum akstri. Flestir þessara verktaka hafa sinnt þessu í áratugi, það er mikil reynsla og gamalreyndir starfsmenn, en auðvitað einhverjir nýir.“
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Bílstjórinn gleymdi fatlaðri konu úti í bíl Bílstjóri ferðaþjónustu fatlaðra gleymdi að skutla fatlaðri konu til vinnu og fór heim til sín í kaffi. Á meðan var konan ein og yfirgefin í bílnum. Konan er mikið flogaveik og því aldrei skilin ein eftir. Málið er litið mjög alvarlegum augum. 28. febrúar 2018 06:00 „Algjörlega ófyrirgefanlegt og óeðlilegt“ Framkvæmdastjóri Strætó segir það með öllu óskiljanlegt hvernig tókst að gleyma fatlaðri konu. 28. febrúar 2018 13:00 Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira
Bílstjórinn gleymdi fatlaðri konu úti í bíl Bílstjóri ferðaþjónustu fatlaðra gleymdi að skutla fatlaðri konu til vinnu og fór heim til sín í kaffi. Á meðan var konan ein og yfirgefin í bílnum. Konan er mikið flogaveik og því aldrei skilin ein eftir. Málið er litið mjög alvarlegum augum. 28. febrúar 2018 06:00
„Algjörlega ófyrirgefanlegt og óeðlilegt“ Framkvæmdastjóri Strætó segir það með öllu óskiljanlegt hvernig tókst að gleyma fatlaðri konu. 28. febrúar 2018 13:00