Stundin hlaut blaðamannaverðlaunin fyrir umfjöllun um uppreist æru Þórdís Valsdóttir skrifar 3. mars 2018 15:44 Á myndinni eru Jón Trausti Reynisson, Áslaug Karen Jóhannsdóttir, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Alma Ómarsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir og Sunna Ósk Logadóttir sem öll hlutu blaðamannaverðlaun í dag. Vísir/Egill
Ritstjórn Stundarinnar vann blaðamannaverðlaunin fyrir ítarlega umfjöllun um uppreist æru kynferðisbrotamanna, áhrif þess á fórnarlömb mannanna og tregðu stjórnvalda til upplýsingagjafar. Verðlaunin voru afhent í dag í Hörpu. Viktoría Hermannsdóttir dagskrárgerðarkona á RÚV hreppti verðlaun fyrir viðtal ársins en hún tók viðtal við og sagði sögu Árna Jóns Árnasonar í þættinum Á ég bróður á Íslandi?. Þátturinn fjallaði um bandarískan mann sem hafði samband við Viktoríu eftir útgáfu þáttanna Ástandsbörn á RÚV. Manninn grunaði að hann ætti bróður á Íslandi því faðir hans hafði sinnt herskyldu hér í síðari heimstyrjöldinni. Á ég bróður á Íslandi? fjallar um leit hins bandaríska David Balsam að bróður sínum. Í tilnefningu blaðamannafélagsins segir að viðtalið við Árna Jón hafi verið einstök og falleg sýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálfbróður og hittir í fyrsta sinn. Alma Ómarsdóttir, einnig á RÚV, hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir upplýsandi og heildstæða umfjöllun um hverjir hlutu uppreist æru, hverjir voru meðmælendur þeirra og áhrif uppreistarinnar á brotaþola. Þá hlaut Sunna Ósk Logadóttir blaðamaður á Morgunblaðinu verðlaun fyrir umfjöllun ársins. Hlaut hún verðlaunin fyrir að reifa skilmerkilega hvernig raforkuþurrð til náinnar framtíðar kallar á ákvarðanir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkjameira og ólík sjónarmið þar um. Stefán Karlsson ljósmyndari Fréttablaðsins tók myndina sem hlaut verðlaun fyrir mynd ársins 2017. Á myndinni eru Glódís Tara, Nína Rún Bergsdóttir, Anna Katrín Snorradóttir og Halla Ólöf Jónsdóttir, en þær fengu sér allar sams konar húðflur. Þær urðu allar fyrir kynferðisofbeldi af hálfu Róberts Downey.Fréttablaðið/Stefán KarlssonMyndir ársins Á sama tíma og verðlaunin voru afhent var opnuð ljósmyndasýning Blaðamannafélags Íslands sem ber heitið Myndir ársins. Þá voru veitt átta verðlaun fyrir myndir ársins 2017. Mynd ársins tók Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins. Myndin sýnir Nínu Rún Bergsdóttur sitja í stól húðflúrara sem er að flúra orðin „I am the storm“ á öxl Nínu. Hún er þar ásamt konum sem allar fengu sér sama húðflúrið og höfðu allar orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu Robert Downey. Í umsögn dómnefndar segir að svæðið sem leitað var af Birnu Brjánsdóttur hafi verið svo stórt að leitarfólkið virðist agnarsmátt andspænis eilífðinni.Fréttablaðið/Eyþór ÁrnasonEyþór Árnason sem einnig er ljósmyndari Fréttablaðsins hlaut verðlaun fyrir fréttamynd ársins 2017 en myndin sýnir björgunarsveitarmenn leita að Birnu Brjánsdóttur í upphafi síðasta árs. Heiða Helgadóttir hlaut verðlaun fyrir myndröð ársins og portrait ársins, Kristinn Magnússon fyrir bestu íþróttamynd ársins, Hörður Sveinsson fyrir bestu umhverfismynd ársins, Heiðdís G. Gunnarsdóttir fyrir að hafa fangað bestu mynd í flokki daglegs lífs og Aldís Pálsdóttir hlaut verðlaun fyrir tímaritamynd ársins 2017. Myndirnar má sjá hér að neðan. Á sýningunni eru 105 myndir sem valdar voru af sjö dómurum. Innsendar myndir voru 732 talsins.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira