Íbúar Vesturbæjar óttaslegnir vegna blásaklauss ljósmyndara Þórdís Valsdóttir skrifar 3. mars 2018 21:00 Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari DV var grunaður um græsku en reyndist alsaklaus í málinu. Vísir
Ljósmyndari DV komst í hann krappann á dögunum þegar hann var tilkynntur til lögreglu fyrir grunsamlega hegðun í Vesturbænum. Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari DV var fenginn í það verkefni að mynda hús sem eru í eigu Gylfa Þórs Sigurðssonar landsliðsmanns í knattspyrnu og íbúum hússins þótti hann svo grunsamlegur að haft var samband við lögreglu. Íbúi í húsinu varð var við ferðir Sigtryggs og fanns hann hegða sér grunsamlega og sagði hann hafa hraðað sér á brott þegar eiginkona hans hefði viljað eiga við hann orð. Íbúinn brá á það ráð að segja frá upplifun sinni á Facebook síðu sem ber heitið Vesturbærinn og er umræðuvettvangur fyrir íbúa hverfisins. Sigtryggur segir að nokkuð margir hafi verið búnir að deila innlegginu og fjallað var um málið á mbl.is. „Mér var bent á þetta og þá var kominn einhver hiti í málið og lýsingar á því hvernig ég hefði farið að,“ segir hann og bætir við að lýsingarnar komi alveg ekki heim og saman við hans upplifun. Í innlegginu á Facebook var tekið fram bílnúmer bílsins sem Sigtryggur ók og einnig að málið hafi verið tilkynnt til lögreglu. „Í bílnum situr maður sem er að fylgjast með húsinu, upp úr þurru tekur hann upp myndavél og fer að smella af myndum af húsinu okkar og þeim sem í því voru stödd á þessum tíma. Þegar konan mín hleypur út til þess að spyrja manninn um nafn og erindi hans þá brennur hann af stað og hverfur út botnlangann á háum hraða,“ segir í innlegginu. „Ég tók mynd og var ekkert að flýta mér þannig lagað séð, en það var nú sagt í færstlunni að ég hefði skransað í burtu þegar íbúinn hafi ætlað að ná tali af mér,“ segir Sigtryggur. Þá segir hann að líklega stafi innleggið af hræðslu við innbrotsgengi sem mikið hefur verið fjallað um að undanförnu. Sigtryggur segir að hann hafi einungis verið að vinna, en hann var með lista af húsum sem hann átti að taka myndir af. „Ég get ekkert hafnað því að ég var að taka myndir af húsum. Þetta var á dagvinnutíma sem er hentugt því fréttin sem um ræðir fjallaði ekki um fólkið sem á heima í húsunum, heldur manninn sem á þau. Ég hugsaði að það væri þægilegt að sem fæstir yrðu fyrir því að sitja heima og einhver maður með stóra myndavél væri að potast í húsinu þeirra,“ segir Sigtryggur sem segist hafa orðið var við bíl í innkeyrslu hússins en segir að hann hafi ekki stressað sig á því. Eftir að kom í ljós að Sigtryggur væri ekki að mynda hús í vafasömum tilgangi þá var innlegginu eytt af Vesturbæjarsíðunni. Íbúar Vesturbæjar ættu því ekki að óttast manninn með stóru myndavélina og lögreglan þarf ekki að rannsaka málið frekar. „Löggurnar hafa að minnsta kosti ekki verið að stoppa mig,“ segir Sigtryggur kíminn.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira