Upphitun: Guardiola mætir á Anfield Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. janúar 2018 06:00
Tveir leikir verða spilaðir í ensku úrvalsdeildinni í dag. Arsenal ætti að geta náð sér í nokkuð auðveldan sigur á meðan Liverpool fær stóra prófraun á Anfield þegar meistaraefnin í Manchester City mæta í heimsókn. Arsenal sækir lið Bournemouth heim en Arsene Wenger og félagar verða að ná sér í sigur til þess að halda sér í baráttunni um eitt af fjórum efstu sætunum. Bournemouth er í harðri baráttu í neðri hluta deildarinnar, en pakkinn frá 10. sæti og niður á botninn er mjög þéttur. Arsenal hefur gert þrjú jafntefli í síðustu fjórum leikjum sínum og hefur ekki tapað síðan liðið lá fyrir Manchester United á heimavelli í byrjun desember. Stórleikur umferðarinnar fer svo fram á Anfield í Liverpool þar sem heimamenn taka á móti Manchester City. Þegar þessi lið mættust á Etihad vellinum í september tók City Liverpool í kennslustund og valtaði yfir þá 5-0. Liverpool er á góðu skriði og hefur ekki tapað í síðustu 13 deildarleikjum sínum. City hefur hins vegar ekki tapað deildarleik á tímabilinu. Sigur væri mjög verðmætur fyrir Klopp og félaga, á meðan Pep Guardiola má alveg við því að tapa þessum leik, City er í raun búið að vinna deildina þó tölfræðilega sé enn möguleiki á öðru. Það þýðir hins vegar ekki að hann vilji tapa, hér mætast tvö sókndjörf lið og verður líklegast skotsýning á Anfield.Leikir dagsins: 13:30 Bournemouth - Arsenal, beint á Stöð 2 Sport 16:00 Liverpool - Manchester City, beint á Stöð 2 Sport
Enski boltinn Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Ver umdeilda veggmynd sína af Ronnie O'Sullivan Sport Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Íslenski boltinn Hákon skoraði glæsimark gegn PSG Fótbolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Dagskráin í dag: Enski og Bestu deildirnar í aðalhlutverki Sport Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest | Sækir Iraola fyrsta deildarsigurinn? PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjá meira