Segja yfirmann hafa brotið á flugvirkjum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 6. janúar 2018 07:00 Þotum Icelandair var lagt einni af annarri í verkfalli flugvirkja fyrir jól. vísir/vilhelm „
Ef starf hefur verið í höndum ákveðinnar iðnstéttar í áratugi er því ekkert breytt með því að einhverjum dettur það í hug einn morguninn,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sem telur tæknistjóra hjá Icelandair hafa gengið í störf flugvirkja í verkfalli fyrir jól. Að morgni verkfallsdagsins 17. desember tók Jens Þórðarson, þáverandi framkvæmdastjóri tæknisviðs Icelandair, af hlífar sem settar höfðu verið yfir hreyfla og læsingar í lendingarbúnaði tveggja farþegaþota Icelandair. Sömuleiðis hlífar af nemum á vélunum sem gefa upplýsingar um hæð og hraða. „Þessar vélar voru útskrifaðar af flugvirkjum nema að flugvirki átti eftir að leggja lokahönd á að gera vélarnar tilbúnar undir brottför með því að fjarlægja þessar hlífar,“ segir Óskar. „Hann tók upp hjá sjálfum sér að taka þessar hlífar af og kvitta fyrir það verk í log-bækur vélanna sem á að vera í höndum flugvirkja eða flugmanna.“ Óskar segir Jens ekki vera flugvirkja. „Við lítum þetta alvarlegum augum. Hann tekur sér það bessaleyfi að ganga í þessi störf og fullvissar flugmenn um að hann sé að gera hluti sem hann hafi rétt til að gera,“ segir hann. Flugvirkjafélagið sé að íhuga næstu skref. „Ég er ekki búinn að skoða ofan í kjölinn hvað má samkvæmt ýtrustu reglugerðum en úr þessu þarf að skera.“ Jens hafnar því að hann hafi verið í órétti er hann tók vetrarvarnirnar af vélunum. „Það krefst ekki flugvirkjamenntunar en engu að síður hefur verið hefð fyrir því að flugvirkjar geri þetta,“ segir Jens. Hann hafi skráð verkið í log-bækur en gert það á annan hátt en flugvirkjar geri. Að sögn Jens fólst í verkum hans ekkert frávik frá reglum eða reglugerðarumhverfi. „Við tökum það eins alvarlega og flugrekandi getur gert og það er ekki verið að víkja frá því. Hins vegar er þetta aðeins öðruvísi en venjulega og það er fullkomlega löglegt,“ segir Jens sem kveðst sjálfur þegar hafa sent Samgöngustofu ábendingu um málið með útskýringum. „Ég hef kannað þetta ítarlega og margstaðfest að ég hafi ekki gert neitt sem var ekki heimilt þennan morgun,“ segir Jens sem nú hefur tekið við starfi sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira