Innlent

Flugfélagið þvertekur fyrir að brottvísun íslensks pars hafi byggst á fordómum

Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar
James og Hafsteinn voru fullir niðurlægingar og vantrausts eftir atvikið.
James og Hafsteinn voru fullir niðurlægingar og vantrausts eftir atvikið.
Flugfélagið Southwest Airlines hefur svarað ásökunum íslensks samkynhneigðs pars sem vísað var frá borði í desember síðastliðnum. Talsmaður flugfélagsins segir ásakanirnar tilhæfulausar og að brottvísunin hafi síður en svo einkennst af fordómum í garð samkynhneigðra. Sagði hann að mönnunum hafi öllu heldur verið vísað frá borði vegna slæmrar hegðunar annars þeirra og hugsanlegrar ölvunar.

Forsaga málsins er sú að parið Hafsteinn Himinljómi Regínuson og James McDaniel voru á ferðalagi frá Íslandi til Alabama-ríkis. Er þeir voru nýsestir um borð í flugvél sem átti að ferja þá frá Washington DC til Alabama ráku lögregluþjónar þá frá borði.

Hafsteinn og James ræddu atvikið í samtali við Fréttablaðið þann 29. desember síðastliðinn og sögðust þeir telja að fordómar í garð samkynhneigðra væru ástæða aðgerðanna.

Í samtali við vefmiðilinn GayIceland lýsti James því að þeir Hafsteinn hefðu um borð í flugvélinni látið vel að hvorum öðrum, líkt og venjuleg pör gera, og teldi að þeim hafi verið gert að yfirgefa flugvélina vegna þess.

„Helsti munurinn á okkur og hinum farþegum flugvélarinnar er sá að við erum opinberlega samkynhneigðir,“ sagði James og bætti við að þeir hafi alls ekki farið yfir almenn velsæmismörk í vélinni, heldur látið vel að hvor öðrum líkt og þeir væru vanir í „frjálsum“ löndum á borð við Ísland.



Flugfélagið segir Hafstein hafa hegðað sér illa og sýnt merki ölvunar

Vefmiðillinn Gay Star News fjallaði um atvikið á dögunum en í kjölfarið svaraði flugfélagið ásökunum þeirra Hafsteins og James. 

„Samkvæmt skýrslum höfðu áhafnarmeðlimir, auk nokkurra farþega, viðrað áhyggjur sínar af hegðun ákveðins farþega skömmu fyrir flugtak,“ segir í yfirlýsingu flugfélagsins en farþeginn sem um ræðir er Hafsteinn.

Í tilkynningunni segir jafnframt að Hafsteinn hafi að mati starfsfólks virst ölvaður. „Flugvallarstarfsmenn fylgdu verkferlum og báðu farþegann um að yfirgefa vélina vegna óláta sem virtust til komin vegna drykkju. Hélt þessi hegðun áfram eftir að farþeginn hafði yfirgefið flugvélina. Í varnaðarskyni voru lögregluþjónar kallaðir til og voru þeir viðbúnaðir við hliðið meðan starfsmenn okkar ræddu við farþegann.“

Þá er sérstaklega tekið fram í tilkynningunni að bandarískum flugfélögum beri að fylgja reglum sem óheimila flutning á fólki sem virðist ölvað.

„Af einskærri góðmennsku ákváðum við að heimila farþeganum og félaga hans að bóka sig í flug næsta dag en þeir höfnuðu því tilboði. Við höfum einnig endurgreitt þeim farmiðana. Þá ber að lokum að geta þess að samkvæmt skýrslum bendir ekkert til þess að atvikið hafa falið í sér nokkurs konar mismunun,“ segir í yfirlýsingu flugfélagsins og er þar tekið fram að Southwest Airlines styðji hinar ótal myndir fjölbreytileika mannfólksins.



„Fengum okkur bara nokkra bjóra með matnum“

James McDaniel svaraði í kjölfarið yfirlýsingu flugfélagsins í samtali við Gay Star News. „Við fengum okkur nokkra bjóra með matnum í Baltimore, en ekkert utan marka. Þeir [starfsfólk flugfélagsins] sökuðu okkur aldrei um ölvun, hvorki um borð í vélinni eða þegar við vorum komnir frá borði,“ fullyrti hann.

James sagði að þeir Hafsteinn hefðu hafnað tilboði flugfélagsins um að fljúga með þeim næsta dag eftir að hafa upplifað niðurlæginguna sem brottvísunin hafði í för með sér. „Við upplifðum okkur svo fulla vantrausts og niðurlægingar að við treystum okkur ekki til þess að fljúga með þeim,“ sagði James og bætti við að hann væri að heyra um endurgreiðsluna í fyrsta skipti núna.

Hafsteinn og James enduðu með því að taka lest alla leið frá Washington DC og til Alabama. Þeir töfðust um fjóra daga og misstu af jólaboði með stórfjölskyldu McDaniels.

„Í hreinskilni sagt vildi ég óska þess að við hefðum verið nógu forsjálir til þess að taka atvikið upp,“ sagði James en þeir Hafsteinn hyggjast leita til lögfræðinga vegna málsins.


Tengdar fréttir

Íslensku pari hótað handtöku á flugvelli

Lögreglumenn ráku Hafstein Regínuson og James McDaniel frá borði flugvélar í Baltimore í Bandaríkjunum skömmu fyrir jól. Þeir telja fordóma gegn samkynhneigðum einu mögulegu ástæðuna fyrir aðgerðum lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×