Komu í veg fyrir vatnsskort í Flatey Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. janúar 2018 12:25 Varðskipið Þór við Flatey í gær. Landhelgisgæslan
Varðskipið Þór dældi í gær þrjátíu tonnum af ferskvatni yfir í Flatey á Breiðafirði vegna yfirvofandi vatnsskorts í eyjunni. Þá stökk áhöfn skipsins einnig til og sinnti slösuðum manni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Heimamenn í Flatey höfðu samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eyjunni. Áhöfn Þórs dældi því þrjátíu tonnum af ferskvatni yfir í eyjuna og gekk dælingin prýðilega, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Unnið var að dælingunni í 5 klukkustundir og 35 mínútur og voru allir tankar í eyjunni orðnir fleytifullir þegar áhöfn Þórs lauk störfum.Dælt var í 5 klukkustundir og 35 mínútur.LandhelgisgæslanÞetta var þó ekki eina verkefnið sem áhöfn varðskipsins sinnti í gær en um það leyti sem Þór var að athafna sig við Flatey barst ábending um að maður á eyjunni hefði slasast og þyrfti á aðhlynningu að halda. Sjúkraflutningamenn úr áhöfn skipsins fóru í land á léttbáti til að athuga líðan mannsins. Skoðun þeirra leiddi í ljós að hann væri líklega rifbeinsbrotinn. Þyrla TF-SYN reyndist vera í gæsluflugi í grenndinni og sótti hún því þann slasaða og flaug með hann í Stykkishólm. Maðurinn var að því búnu fluttur á heilbrigðisstofnun í bænum til aðhlynningar. Myndband af verkinu má sjá hér að neðan.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sjá meira