Innlent

Eldur í ruslatunnu barst í húsnæði

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/GVA
Eldur kom upp í þremur ruslagámum á Suðurnesjum um helgina og í eitt sinn barst eldurinn í íbúðarhúsnæði í Sandgerði. Lögreglan á Suðurnesjum segir íbúum hússins hafa sjálfum tekist að slökkva eldinn og að hann virðist einungis hafa valdið tjóni utan á húsinu.

Þá kviknaði einnig í ruslagámi í Njarðvík og öðrum í Keflavík og var slökkviliðið kallað út í bæði skiptin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×