Lífið

„Man þegar ég hélt að lífið gengi út á það að finna kærasta“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það er alltaf nóg að gera hjá Páli Óskari.
Það er alltaf nóg að gera hjá Páli Óskari. vísir/vilhelm
Páll Óskar Hjálmtýsson hefur í gegnum árin verið einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar. Hann er á fullu í Borgarleikhúsinu um þessar mundir og er jólatörnin framundan hjá kappanum. Páll Óskar er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

„Ég hef orðið yfir mig ástfanginn fjórum sinnum í lífinu og það gekk aldrei upp,“ segir Páll Óskar í þættinum og heldur áfram.

„Ég var síðast skotinn árið 2008 og það var svona fyrsta heilbrigða sambandið. Málið er að ég get ekki boðið sjálfum mér upp á það að vera skotin í einhverjum sem er annaðhvort líkamlega eða andlega óaðgengilegur. Ég get ekki og nenni ekki að reyna byrja í einhverju sambandi við einhvern sem býr í Kaliforníu. Hann er ekki líkamlega aðgengilegur. Þá víkur sögunni hingað heim á frón. Hommalíf hér á Íslandi er eins og blanda af fiskabúri og skókassa. Yndislegir strákar en við erum alveg svakalega fáir,“ segir Páll sem nefndir til sögunnar Facebook-hópinn Hommaspjallið en þar eru aðeins samkynhneigðir íslenskir karlmenn sem eru komnir út úr skápnum.

Blanda af fiskabúri og skókassa

Síðast þegar Páll vissi voru meðlimir hópsins 701.

„Enn sem komið er er ég ekki skotinn í neinum þeirra. Ég veit sirkabát hverjir þetta eru og stundum þekki ég kennitöluna þeirra, þeir eru kannski búnir að sofa hjá öllum vinum mínum og það er ekkert sérstaklega sexy tilhugsun. Hvað gerum við? Jú við leitum út fyrir landsteinana.“

Páll Óskar hefur verið einn þekktasti söngvari þjóðarinnar síðustu tvo áratugi.vísir/vilhelm
Palli segist hafa tekið ákvörðun um að velja framann frekar en að eltast við karlmann út í heimi.

„Það var í raun mikilvægara heldur en þessi eilífa örvæntingafulla leit að einhverjum gaur. Ég verð bara að treysta því að eitthvað gerist einn daginn en þangað til er ég mjög sáttur í eigin skinni, sem betur fer. Ég man eftir sjálfum mér þar sem ég hélt að lífið gengi út á það að finna kærasta. Orkan sem fór í þá leit tafði fyrir mér og mínu eigin lífi.“

Páll Óskar og Monika halda fjölmarga tónleika í desembermánuði og til að mynda ferna tónleika í Háteigskirkju.

Í þættinum ræðir Palli einnig um söngleikinn Rocky Horror, um það hvernig venjulegur dagur er í hans lífi, um einstakt samstarf hans og Moniku, um Eurovision og margt fleira.

Hér að ofan má sjá áttunda þáttinn af Einkalífinu en þátturinn vikulegi er í loftinu á fimmtudögum á Vísi.


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×