Innlent

Veiðiþjófar hækka verð á leyfum í Elliðaánum

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Verðskrá Elliðaáa hækkar vegna aukinna útgjalda. Meðal annars til að bregðast við veiðiþjófnaði.
Verðskrá Elliðaáa hækkar vegna aukinna útgjalda. Meðal annars til að bregðast við veiðiþjófnaði. Vísir/GVA
Veiðigjöld í Elliðaám hækka á næsta ári en tillaga Stangveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) þess efnis var staðfest, með fyrirvara um samþykki Reykjavíkurborgar, á síðasta stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur. SVFR segir hækkunina nauðsynlega til að mæta kostnaðarauka félagsins af rekstri ánna. Meðal þess sem bregðast þarf við er aukinn veiðiþjófnaður í ánum sem SVFR vill sporna við með aukinni veiðivörslu.

SVFR lagði í september síðastliðnum fram tillögu um breytingar á verðskrá veiðigjalda sem samþykkt hefur verið af samráðsnefnd Elliðaáa, sem skipuð er fulltrúum SVFR og OR. Í erindinu kemur fram að beinn útlagður kostnaður SVFR við rekstur ársvæðisins hafi hækkað vegna rannsóknarsamninga og aukinnar veiðivörslu þar sem veiðiþjófnaður hafi aukist við árnar. Einnig standi til að bæta aðgengi veiðimanna að ánni.

Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri SVFR. Fréttablaðið/Stefán
Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri SVFR, segir að hækkunin fylgi verðlagsþróun en ekki sé gefið upp hverju hún nemur. SVFR beri allan rekstrarkostnað af ánum en til standi að bæta merkingar, aðgengi að veiðistöðum og vegslóða fyrir næsta sumar.

„Rannsóknarkostnaðurinn felur í sér að við erum með miklar rannsóknir á Elliðaánum af því að þær renna í gegnum borg og ef eitthvað gerist þurfum við að geta rakið það fljótt og auðveldlega. Svo er ekkert leyndarmál að það er mikið um veiðiþjófnað og við þurfum að bera kostnað af því öllu saman.“

Ari kveðst ekki hafa tölu á fjölda tilfella en að þeir hafi orðið varir við fjölgun á atvikum sem til kasta félagsins hafa komið.

„Það eru bæði Íslendingar og útlendingar sem eru að stelast í árnar og við viljum efla gæslu. Við viljum koma í veg fyrir það sem mest er. Við höfum verið að merkja árnar betur, á mörgum tungumálum, og viljum ganga lengra í því.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×