Veiðiþjófar hækka verð á leyfum í Elliðaánum Sigurður Mikael Jónsson skrifar 10. nóvember 2017 07:00 Verðskrá Elliðaáa hækkar vegna aukinna útgjalda. Meðal annars til að bregðast við veiðiþjófnaði. Vísir/GVA
Veiðigjöld í Elliðaám hækka á næsta ári en tillaga Stangveiðifélags Reykjavíkur (SVFR) þess efnis var staðfest, með fyrirvara um samþykki Reykjavíkurborgar, á síðasta stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur. SVFR segir hækkunina nauðsynlega til að mæta kostnaðarauka félagsins af rekstri ánna. Meðal þess sem bregðast þarf við er aukinn veiðiþjófnaður í ánum sem SVFR vill sporna við með aukinni veiðivörslu. SVFR lagði í september síðastliðnum fram tillögu um breytingar á verðskrá veiðigjalda sem samþykkt hefur verið af samráðsnefnd Elliðaáa, sem skipuð er fulltrúum SVFR og OR. Í erindinu kemur fram að beinn útlagður kostnaður SVFR við rekstur ársvæðisins hafi hækkað vegna rannsóknarsamninga og aukinnar veiðivörslu þar sem veiðiþjófnaður hafi aukist við árnar. Einnig standi til að bæta aðgengi veiðimanna að ánni.Ari Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri SVFR. Fréttablaðið/StefánAri Hermóður Jafetsson, framkvæmdastjóri SVFR, segir að hækkunin fylgi verðlagsþróun en ekki sé gefið upp hverju hún nemur. SVFR beri allan rekstrarkostnað af ánum en til standi að bæta merkingar, aðgengi að veiðistöðum og vegslóða fyrir næsta sumar. „Rannsóknarkostnaðurinn felur í sér að við erum með miklar rannsóknir á Elliðaánum af því að þær renna í gegnum borg og ef eitthvað gerist þurfum við að geta rakið það fljótt og auðveldlega. Svo er ekkert leyndarmál að það er mikið um veiðiþjófnað og við þurfum að bera kostnað af því öllu saman.“ Ari kveðst ekki hafa tölu á fjölda tilfella en að þeir hafi orðið varir við fjölgun á atvikum sem til kasta félagsins hafa komið. „Það eru bæði Íslendingar og útlendingar sem eru að stelast í árnar og við viljum efla gæslu. Við viljum koma í veg fyrir það sem mest er. Við höfum verið að merkja árnar betur, á mörgum tungumálum, og viljum ganga lengra í því.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Innlent Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Innlent Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Strætó enn á eftir áætlun en opnun hringvegarins í vinnslu Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Ríkislögreglustjóra sagt að endurskoða reksturinn og allt á floti í hlákunni Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Bein útsending: Langvinn einkenni Covid Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Hringvegurinn opinn á ný Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Opnun Brákarborgar frestað enn á ný Sjá meira