Erfiður jólamánuður blasir við mörgum Lovísa Arnardóttir skrifar 1. desember 2017 08:00 Dæmi um mat og aðrar nauðsynjavörur sem Mæðrastyrksnefnd úthlutaði þessa vikuna. vísir/vilhelm
Í þessari viku sóttu 350 manns um aðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og um hádegisbil á miðvikudaginn hópaðist hluti þeirra saman við húsakynni nefndarinnar í Hátúni. Fólkið var á öllum aldri, nokkur börn voru þar með foreldrum. Fyrir utan biðu um tíu til tólf manns í kuldanum á meðan annar álíka stór hópur sótti mat fyrir innan. Palli beið fyrir utan. Hann er 54 ára gamall. Hann fær endurhæfingarlífeyri eftir að hafa fengið hjartaáfall í vinnunni í apríl árið 2016. Hann segist hafa dáið í 11 mínútur. „Ég hef komið hingað í fimm ár,“ segir Palli. „Ég kem oftast seinna í mánuðinum og frekar á sumrin, þegar það eru sumarfrí. Þá eru börnin meira heima.“ Palli er nefnilega níu barna faðir. Fimm barna hans eru uppkomin og eru flutt að heiman. Hin fjögur eru enn á heimilinu og á hans framfæri. Konan hans er í fæðingarorlofi. Palli segir að samanlagðar tekjur þeirra séu rúmlega hálf milljón á mánuði. Þau eiga þrjú yngstu börnin saman en þau eru á aldrinum eins til fjórtán ára. Þau búa öll sex í félagsíbúð í Reykjavík.Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur„Eftir að búið er að borga leigu og aðrar nauðsynjar eigum við kannski 60 til 80 þúsund krónur eftir fyrir annað,“ segir Palli en neysluviðmið velferðarráðuneytisins gerir ráð fyrir að heildarútgjöld fjölskyldu með fjögur börn á framfæri sé 676.535 krónur á mánuði, án húsnæðiskostnaðar. „Það er fast haldið í þennan. Það má ekkert koma upp á,“ segir Palli. Fyrir innan sér Anna H. Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, um að úthluta mat og öðrum nauðsynjum og nýtur liðsinnis sjálfboðaliða. Mataraðstoðin er hugsuð þannig að hún eigi að duga í heila viku. Þar er yfirleitt að finna brauð, mjólk, jógúrt og eina stóra máltíð, sem inniheldur þá einhverja kjötvöru. Ýmsar aðrar nauðsynjavörur, eins og hreinlætisvörur, er einnig að fá. Stundum er boðið upp á afþreyingu eins og bíó- eða leikhúsmiða en oftast er það um jólin. Jólasöfnun nefndarinnar stendur nú yfir. „Við þurfum nærri 30 milljónir fyrir því sem við erum að fara að gera, með matarinnkaupum og öðru. Við þurfum að fá styrki fyrir því. Það tókst í fyrra og við erum að vona að það muni takast aftur í ár,“ segir Anna. Jólaúthlutun nefndarinnar fer fram 20. desember. Nú þegar hafa að minnsta kosti 700 einstaklingar og fjölskyldur skráð sig fyrir úthlutun. „Við erum að búast við að þetta endi í um eitt þúsund manns,“ segir Anna en margir af þeim sem mættu í úthlutun á miðvikudag ætluðu einnig að skrá sig í jólaaðstoðina.Heimilisbrauð var til að mynda í boði.vísir/vilhelmAnna segir að töluverð fækkun sé frá því árin áður. Árið 2015 sóttu 400 til 500 manns sér aðstoð í hverri viku. Fólk á öllum aldri leitar til þeirra. „Þú verður að vera orðinn 18 ára til að sækja slíka aðstoð en þetta er allt upp í áttrætt fólk sem leitar til okkar. Svo er að koma mikið af ungu fólki sem hefur kannski eitthvað misstigið sig.“ Á meðal þeirra sem biðu eftir úthlutun á sama tíma og Palli voru tvær ungar konur. Báðar hafa komið til Mæðrastyrksnefndar annað slagið í eitt og hálft ár. Þær vildu síður koma fram undir nafni. Við skulum kalla þær Jónínu og Fríðu. Þær eru báðar 27 ára og búa í Kópavogi. Þær segja mun erfiðara að fá slíka aðstoð í Kópavogi en í Reykjavík og það geti skipt öllu máli að geta sótt sér slíka aðstoð, þó það sé ekki nema einstaka sinnum. „Við erum heppnar ef við náum 200 þúsund krónum á mánuði í tekjur“ segir Jónína. Fríða, á eitt barn og er einstæð móðir. Hún er utan af landi en býr í félagsíbúð á vegum Kópavogsbæjar. Hún á rétt á endurhæfingarlífeyri og sagði oft erfitt að ná endum saman. „Ég hætti í sambandi fyrir tveimur árum sem setti mig í skuldasúpu. Ég er enn að ná mér upp eftir það.“Matarpokinn sem Palli fékk hjá Mæðrastyrksnefnd þessa vikuna.vísir/vilhelmJónína er þriggja barna móðir og er á almennum leigumarkaði. Aðspurð hvernig hún fari að því að ná endum saman segist hún vera „bara heppin að eiga góða að. Annars myndi dæmið ekki ganga upp.“ Þær eru báðar í námi hjá Hringsjá sem er náms- og starfsendurhæfing fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn eftir hlé vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla. Fríða sagði félagsráðgjafann hjá Hringsjá hafa reynst þeim sérstaklega vel og hafi bent þeim á úrræði Mæðrastyrksnefndar og aðstoðað þær við að komast að þar. „Hún hjálpaði okkur að skilja að það er engin skömm í því að leita sér aðstoðar. Það skipti miklu máli. Ég grét á kvöldin áður en ég vissi af þessum úrræðum.“ segir Fríða. Þær segjast báðar aðeins sækja sér slíka aðstoð í ítrustu neyð, en hafi verið mjög fegnar þegar þeim var bent á þetta úrræði. „Við förum kannski einu sinni á tveggja mánaða fresti. En alltaf í desember. Það er alltaf erfiður mánuður,“ segir Fríða. Þær eru báðar skráðar í jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. „Jólin eru að koma og þetta hjálpar mörgum.“ segir Jónína.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Frekari breytingar í Valhöll Innlent Fleiri fréttir Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Mun sjá eftir árásinni alla ævi Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Sjá meira
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent