Um átta hundruð gætu átt rétt á endurgreiðslu atvinnuleysisbóta Atli Ísleifsson skrifar 26. júní 2017 13:50 Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að fjöldi þeirra sem haft sé samband við sé um átta hundruð manns. Vísir/Vilhelm
Vinnumálastofnun hefur hafið vinnu við að hafa samband við einstaklinga sem gætu hugsanlega átt rétt á atvinnuleysisbótum í kjölfar dóms Hæstaréttar um styttingu á bótatímabili atvinnuleysisbóta úr 36 í þrjátíu mánuði. Í dómnum kemur fram að Alþingi hafi verið óheimilt að skerða bótarétt þeirra sem þegar höfðu virkjað rétt sinn til atvinnuleysisbóta fyrir 1. janúar 2015 og eigi þeir samkvæmt niðurstöðu dómsins rétt á 36 mánaða bótatímabili. Dómurinn hafi hins vegar ekki áhrif á þá sem fengu fyrst greiddar atvinnuleysisbætur eftir 1. janúar 2015. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir í samtali við mbl að fjöldi þeirra sem haft sé samband við sé um átta hundruð manns.Einstaklingar þurfi ekki að bíða um of eftir niðurstöðu Í tilkynningu frá Vinnumálastofnun segir að stofnunin hafi þegar leiðrétt bótatímabil þeirra einstaklinga sem séu atvinnulausir og séu að þiggja greiðslur atvinnuleysisbóta frá stofnuninni í dag. Séu þetta um 1.200 einstaklingar.VinnumálastofnunVísir/hanna„Vinnumálastofnun mun nú á næstu vikum setja sig í samband við alla þá sem fullnýttu 30 mánuði af bótatímabili sínu eftir 1. janúar 2015 og fram til 1. júní 2017 í því skyni að leiðbeina þeim um hugsanlegan rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Stofnunin mun hafa samband við þá einstaklinga sem kunna að eiga slíkan rétt eftir því hvenær viðkomandi fullnýtti 30 mánaða bótarétt sinn. Er það gert til að dreifa álagi hjá stofnuninni og einnig til að einstaklingar þurfi ekki að bíða um of eftir því að fá niðurstöðu vegna beiðni sinnar. Vinnumálastofnun hefur nú þegar hafið vinnu við að hafa samband við alla þá sem fullnýttu bótatímabil sitt frá apríl til júní 2017. Í þessari viku verður haft samband við þá sem fullnýttu bótatímabil sitt á tímabilinu janúar til mars 2017. Í kjölfar þess mun stofnunin hafa samband við þá sem fullnýttu bótatímabil sitt á tímabilinu janúar til apríl 2015 o.s.frv. þar til að stofnunin hefur haft samband við alla þá sem fullnýtt hafa bótatímabil sitt eftir 1. janúar 2015. Er það markmið Vinnumálastofnunar að búið verði að hafa samband við alla fyrir lok septembermánaðar. Enn fremur er það markmið Vinnumálastofnunar að hafa lokið greiðslu atvinnuleysisbóta til allra þeirra sem eiga rétt til þess á grundvelli dóms Hæstaréttar eigi síðar en í byrjun nóvember nk.,“ segir í tilkynningunni. Nánar má lesa um málið á vef Vinnumálastofnunar.
Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Innlent Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Innlent Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Erlent Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Fleiri fréttir Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Sjá meira