Garðbæingar klæðast 66°Norður úlpum og aka um á Land Rover Benedikt Bóas skrifar 1. september 2017 07:00 Það sem kom fyrst upp í hugann hjá þátttakendum þegar spurt var um Garðabæ: Stjarnan, fjölskyldur, grænt umhverfi, fjölskylduvænt, góður bær. Vísir/Sigurjón Ólason
Þátttakendur í fjórum rýnihópum um þjónustu Garðabæjar nefndu ítrekað að bærinn væri einsleitt samfélag fyrir vel stætt fólk og að útlit og hegðun til dæmis ungmenna væri dæmi um að þar væru flestir með iPhone-síma, í 66°Norður úlpum og fólk æki um á Land Rover Discovery. Þetta kom fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær þar sem fjallað var um greinargerð Gallup um niðurstöður rýnihópanna. Í greinargerðinni kemur einnig fram að margir þættir þóttu bera þess merki að Garðabær stæði betur fjárhagslega en nágrannasveitarfélögin, til að mynda væru þar góðir skólar og leikskólar og myndarlegur stuðningur við íþróttafélagið Stjörnuna. Aftur á móti var ágreiningur um hvort það væri dýrt eða ódýrt að búa í Garðabæ. Það sem var talið hagkvæmt var ódýrari dagmæður, lægra útsvar og val um sumarfrí. Á hinn bóginn töldu sumir þátttakendur of dýrt að búa í bænum og voru dýrar tómstundir og ýmis gjöld nefnd. Þá væri lítið af ódýrari úrræðum fyrir til dæmis yngra fólk. Íbúðaframboð væri einhæft og dýrt. Niðurstaða rýnihópa Gallup er að þjónustan í Garðabæ þyki góð á mörgum sviðum og framúrskarandi á til dæmis leik- og grunnskólastigi að undanskildum ábendingum um lélegt húsnæði. Aftur á móti séu næg tækifæri til að gera betur í þjónustu við fatlað fólk, og voru húsnæðismálin þá nefnd auk þess sem mikið af þjónustunni fari fram í öðrum sveitarfélögum, til dæmis Kópavogi og Hafnarfirði. Oft var minnst á að Garðabær væri um marga hluti afskaplega einsleitt bæjarfélag og var umræðan neikvæð um áhrif þess. Stærð og tegund húsnæðis væri einsleit, lítið væri um fjölbreytni íbúa í bæjarfélaginu og það væru fá félagsleg úrræði. Að auki var nefnt að áhersla á íþróttafélagið Stjörnuna væri mikil og því minni gróska í öðru íþrótta- og tómstundastarfi, til dæmis eftir skóla.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Erlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira