Fjármögnuðu gönguskíði fyrir leikskólabörn með sushi-sölu Aron Ingi Guðmundsson skrifar 5. desember 2017 10:43 Börnin voru himinlifandi með gjöfina. mynd/Ágúst G. Atlason.
Hópur kvenna á Ísafirði sem kalla sig Gullrillurnar, gáfu leikskólanum Tanga á Ísafirði gönguskíði að gjöf. Hópurinn fjármagnaði skíðin með því að selja sushi en markmiðið er að gefa fleiri leikskólum á Vestfjörðum skíði og þannig stuðla að frekari gönguskíðamenningu. „Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt, hér er mikil skíðamenning og þess vegna kom þessi hugmynd upp. Við ákváðum að hafa fjáröflun, búa til sushi og selja en það er enginn sushi staður á Ísafirði og alla langaði í sushi. Þannig að við seldum sushi og fyrir ágóðan af því keyptum við sem sagt gönguskíði sem við gáfum Tanga,“ segir Ásgerður Þorleifsdóttir, einn meðlimur Gullrillanna.Krakkarnir á Tanga.vísir/ágúst g. atlasonTveir leikskólar eru á Ísafirði, en Tangi er deild innan leikskólans Sólborgar. Deildin er fyrir fimm ára börn, elstu börnin á leikskólaaldri. Gullrillurnar eru hópur kvenna frá Ísafirði sem koma úr ólíkum áttum. „Við kynntumst í kjölfarið af jafnréttisráðstefnu um árið og vorum allar svo pumpaðar eftir þá ráðstefnu að við ákváðum að gera eitthvað skemmtilegt saman í kjölfarið. Við höfum sett okkur ýmis markmið í gegnum tíðina og brallað margt.“Ýmislegt á döfinni Ásgerður segir það kost að búa í litlu samfélagi. „Bobbi í Kraftsport sem er með umboðið fyrir þessa skíðategund fékk gott tilboð frá skíðaframleiðandum úti, svo þegar við fórum að sækja skíðin þá var forstöðumaður skíðasambandsins á Ísafirði í versluninni og hann stökk af stað og gerði skíðabraut í hvelli. Svo kom Gústi ljósmyndari og tók myndir og video þannig að þetta small allt skemmtilega saman.“Markmiðið er að stuðla að frekari gönguskíðamenningu á Vestfjörðum.vísir/ágúst g. atlasonKrakkarnir á Tanga voru mjög ánægð og spennt yfir gjöfinni að sögn Ásgerðar, en gjöfin er liður í að stuðla að gönguskíðamenningu á staðnum. „Það má segja að þetta sé gönguskíðabær Íslands, algjör gönguskíðaparadís, það er alltaf hægt að komast á gönguskíðasvæðið eftir að það fer að snjóa, þar er alltaf opið.“ Og verkefninu er ekki hér með lokið. „Fleiri fyrirtæki vilja taka þátt í þessu með okkur og hafa lýst yfir vilja til að kaupa fleiri skíði. Næst á dagskrá er Flateyri, við erum búin að fá styrk til að gefa leikskólanum þar gönguskíði. Svo er Þingeyri og Suðureyri eftir, það væri frábært að geta gefið leikskólum í nærliggjandi bæjum líka skíði.“ Ásgerður bendir að lokum á að ef einhver vill vera með í að styrkja þetta verkefni þá sé hægt að hafa samband við Gullrillurnar á síðunni þeirra á Facebook.
Mest lesið Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin Sjá meira