Rukka Norðursiglingu í deilu um gjaldtöku Haraldur Guðmundsson skrifar 2. nóvember 2017 07:00 Norðursigling rekur hvalaskoðun og veitingasölu á Húsavík. Vísir/Stefán
Norðursigling hefur ekki greitt hafnasjóði Norðurþings farþegagjöld frá ársbyrjun 2015 og mun sveitarfélagið að óbreyttu leita til dómstóla. Fyrirtækið telur gjaldtökuna ólögmæta en það skuldar hafnasjóðnum rúmar 30 milljónir króna. Þá hefur hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants á Húsavík ekki heldur greitt gjöldin fyrir 2015 og einn reikning frá árinu 2010. Ágreiningur er á milli sveitarfélagsins og Norðursiglingar, sem selur hvalaskoðunarferðir frá Húsavík, um stofn gjaldtökunnar og upphæð. Fyrirtækið fór árið 2011 fram á endurgreiðslu á farþegagjöldum. Á fundi hafnanefndar Norðurþings á mánudag kom fram að önnur fyrirtæki sem stunda farþegaflutninga við Húsavíkurhöfnina hafi greitt gjöldin. Uppbygging þar hafi verið umtalsverð síðastliðin ár og var meðal annars nefnt að flotbryggjum hafi verið fjölgað og höfnin dýpkuð. Stjórnendum hafnarinnar hafi því verið falið að vinna áfram með lögfræðingum og sækja málið. „Þessi gjöld hafa verið nýtt í almennar hafnarbætur en okkar sjónarmið hefur verið að þau megi einungis nota til aðstöðu fyrir farþega. Við erum í vináttu að ræða þessi mál og leita lögfræðiálita en við teljum að skýrar reglur séu fyrir því í hvað eigi að nota þessi gjöld. Við teljum að Norðurþing hafi ekki getað sýnt fram á í hvað peningarnir verða notaðir og þá hvort upphæðin sem verið er að leggja á sé rétt,“ segir Pétur J. Eiríksson, stjórnarformaður Norðursiglingar. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarstjórninni var innheimta farþegagjalda ekki í föstum skorðum hjá höfnum Norðurþings árið 2015 og nokkru fyrr. Það geti skýrt af hverju Gentle Giants hafi ekki heldur greitt það ár. „Þetta er bara misskilningur. Ég ætla ekki að ræða það við þig,“ segir Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri, markaðsstjóri og skipstjóri hjá Gentle Giants, spurður um afstöðu fyrirtækisins gagnvart kröfu Norðurþings.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira