Of seint í rassinn gripið segir oddviti um undirskriftir Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. desember 2017 06:30 Grunnskólinn er norðarlega á Þórshöfn en leikskólinn er meira miðsvæðis. vísir/pjetur „
Þetta er ákvörðun sem á að taka með faglegum rökum en ekki með pólitík,“ segir Siggeir Stefánsson, fulltrúi minnihluta U-listans í sveitarstjórn Langanesbyggðar, sem lagt hefur fram lista með nöfnum 30 prósenta kjörbærra íbúa í sveitarfélaginu með áskorun um að kosið verði um staðsetningu nýs leikskóla. „Greinilegt er að íbúar vilja taka þátt í ákvörðuninni um staðsetningu nýs leikskóla og hefðu íbúar Langanesbyggðar þá möguleika á að koma sínum skoðunum á framfæri,“ segir í bókun U-listans í málinu. Húsnæði núverandi leikskóla á Þórshöfn er illa farið og eining um að nýtt húsnæði þurfi. Meirihluti N-lista og L-lista vilja byggja við núverandi húsnæði nærri heilsugæslunni en fulltrúar U-listans vilja byggja nýjan leikskóla áfastan við Grunnskóla Þórshafnar. Þeir vitna til ráðgjafar Ingvars Sigurgeirssonar, prófessors við kennaradeild Háskóla Íslands. Ingvar hafði áður stutt að leikskólinn yrði byggður við grunnskólann og sagt fyrir því bæði fagleg og rekstrarleg rök. Hann kveðst í umsögn hafa í aðdraganda íbúafundar um málið gert könnun á því hvernig samskipan leikskóla og grunnskóla hefur gengið annars staðar og fengið svör frá níu skólastjórum. Niðurstaðan hafi verið sú að kostir væru miklu fleiri en gallar. „Fyrir lítið sveitarfélag er afar skynsamlegt, bæði af rekstrarlegum og faglegum ástæðum, að hafa leik- og grunnskóla í sömu byggingu, sé þess nokkur kostur. Margt bendir líka til þess að virðisaukinn af þessu fyrirkomulagi sé mestur þegar bæði stigin lúta sömu stjórn,“ segir í umsögn Ingvars. Það sé afar miður að meirihluti sveitarstjórnar vilji ekki skipta um skoðun. „Við fögnum öllum góðum áskorunum en þetta er fullt seint í rassinn gripið því þetta verk er komið á framkvæmdastig,“ segir Þorsteinn Ægir Egilsson oddviti. Fyrsta skóflustunga hafi verið tekin fyrr í þessum mánuði og verið sé að undirbúa útboð á verkinu. „Það var ekki farið eftir lögum og reglum við þessa undirskriftasöfnun þannig að hún er í raun ómarktækt plagg. Undirskriftalistarnir hafa þess utan ekki verið afhentir mér vitanlega.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira