Sló mann í höfuðið með rörbút og annan með hamri Anton Egilsson skrifar 28. desember 2017 23:20 Maðurinn hefur verið kærður fyrir alvarlega líkamsárás. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í gær þriggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa hafa slegið mann í höfuðið með rörbút og annan með hamri. Þá liggur hann einnig undir grun um aðra líkamsárás, þrjú þjófnaðarbrot og tug umferðalagabrota. Í greinargerð Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að þann 20. desember hafi maður óskað eftir aðstoð lögreglu í kjölfar þess að hann hafi orðið fyrir líkamsárás á Laugavegi. Þegar lögreglu bar að garði hafi hinn slasaði setið út í horni og verið búinn að vefja viskastykki yfir höfuð sitt. Aðspurður um hvað hefði gerst sagði hann að meintur árásarmaður hefði lamið sig með hamri. Hinn slasaði var í kjölfarið fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi en meintur árásarmaður var handtekinn á vettvangi og síðar kærður fyrir alvarlega líkamsárás. Neitaði hann alfarið sök í skýrslutöku hjá lögreglu.Þurfti að sauma sjö spor í vinstra eyraÞriðjudaginn 12. desember síðastlðinn var lögreglu tilkynnt um líkamsárás að Laugavegi og var þá sami maður meintur árásarmaður. Sá sem varð fyrir árásinni kveður manninn hafa slegið sig þungu höggi með röri en sauma þurfti sjö spor í vinstra eyra hans í kjölfarið. Framburður þriggja vitna sem styðja framburð hins slasaða liggja fyrir. Maðurinn sætir rannsókn lögreglu vegna ýmissa annarra brota en hann er einnig grunaður um þrjú þjófnaðarbrot og aðra líkamsáras en hann er talinn hafa ráðist að tveimur mönnum á Ingólfstorgi í október síðastliðnum og slegið annan þeirra í andlitið. Auk framagreinds er kærði með tíu mál á hendur sér er varða meint umferðarlagabrot á tímabilinu 8. apríl 2017 til 11. nóvember 2017 en í málunum er hann grunaður um að hafa ekið bifreið án ökuréttar og vera óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna. Lesa má dóm Hæstaréttar í heild sinni hér.
Mest lesið Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Innlent „Auðvitað hef ég íhugað það“ Innlent Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt Innlent Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Innlent „Sá gamli er miklu fallegri“ Innlent Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Innlent „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Innlent Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Erlent Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Innlent Fleiri fréttir Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Sjá meira