Íbúar á Björgum á Patreksfirði uggandi yfir slysahættu í hverfinu 29. nóvember 2017 11:00
VESTURBYGGÐ Íbúar í hverfinu Björgum á Patreksfirði hafa skilað inn undirskriftalista og kallað eftir því við bæjarstjórn Vesturbyggðar að gerðar verði úrbætur á umferðaröryggi við götuna. Í bréfi íbúa til bæjarstjórnar segir að miklar breytingar hafi orðið á íbúasamsetningu í hverfinu, börnum hafi fjölgað mikið og umferðin inn í bæinn á sama tíma aukist. Bent er á að íbúar á Björgum hafi vakið athygli á sömu atriðum á íbúafundi árið 2015. Leiknir Fannar Thoroddsen, íbúi á Björgum, er óhress með stöðu mála. „Ég heyrði að það ætti að gera hringtorg hér fyrir ofan, en það er bara ekkert pláss þar fyrir hringtorg að mínu mati. Það verður að vera eitthvað róttækt, til dæmis að setja undirgöng undir veginn. Þegar dóttir mín hjólar af stað að heiman, þá stressast maður allur upp.“ Leiknir bendir á breytinguna í íbúasamsetningu hverfisins. „Fyrst varð íbúafækkun hér á Patreksfirði yfir einhvern tíma, en núna er bara allt orðið fullt af börnum. Það eru bílar að koma á 90 kílómetra hraða þarna niður því þetta er þjóðvegur, þótt hámarkshraðinn þarna eigi að vera 50 kílómetrar á klukkustund. Svo er ekki vel lýst þarna. Ég er í rútuakstri og hef séð börn birtast bara allt í einu þarna, það er ekki spurning um hvort það verði slys þarna, heldur hvenær, það er bara staðreynd. Það er myrkrið eina sem tekur við börnunum á þessari leið.“ Bæjarráð Vesturbyggðar hefur ítrekað þann vilja sinn í ályktun að endurbætur verði gerðar á svæðinu. – aig
Mest lesið Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Fleiri fréttir Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn Sjá meira