Fótbolti

Lukaku jafnaði markamet Belgíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Romelu Lukaku.
Romelu Lukaku. Vísir/Getty
Romelu Lukaku jafnaði met Paul van Himst og Bernard Voorhoof þegar hann skoraði tvö af mörkum Belga í jafntefli við Mexíkó í gærkvöld.

Seinna mark Lukaku var 30. mark hans fyrir Belgíu. Hann er því kominn í hóp þeirra van Himst og Voorhoof sem markahæstu leikmenn Belgíu frá upphafi.

Lukaku hefur ekki verið á skotskónum fyrir félagslið sitt, Manchester United, en hann skoraði síðast mark í síðasta landsleikjahléi.

„Að hafa náð þessum árangri á mínum aldri er mjög gott,“ sagði Lukaku, en góðar líkur eru á því að hann muni bæta metið og verða einn markahæstur belgískra landsliðsmanna áður en ferli hans líkur.

Leikurinn, sem var hluti af undirbúningi þjóðanna fyrir Heimsmeistaramótið, endaði með 3-3 jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×