Hjólaþjófur staðinn að verki í Laugarneshverfinu Atli Ísleifsson skrifar 15. október 2017 07:16 Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi hótað og hrækt á manninn sem tilkynnti málið til lögreglu. Vísir/Getty
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók síðdegis í gær karlmann við Otrateig í Laugarneshverfi vegna gruns um þjófnað á reiðhjólum. Annar maður kom að manninum þar sem hann var að klippa lás á hjóli og hafði hann þá líklegast snúið aftur á staðinn þar sem annað hjól var þegar horfið. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi hótað og hrækt á manninn sem tilkynnti málið til lögreglu, en hinum grunaða var haldið niðri af manninum þar til lögregla kom á vettvang. Maðurinn var vistaður í fangageymslu. Þá segir að lögregla hafi handtekið karl og konu í bíl á Seltjarnarnesi en þau eru grunuð um vörslu fíkniefna og ölvun við akstur. Voru þau bæði vistuð í fangageymslu lögreglu. Á Eyjaslóð var maður handtekinn vegna gruns um eignaspjöll og var hann vistaður í fangageymslu. Lögregla handtók einnig mann á heimili í Breiðholti þar sem hann var til vandræða og var hann færður í fangageymslu. Þá stöðvaði lögregla nokkra ökumenn vegna gruns um ölvun við akstur. Loks var maður handtekinn á Kjalarnesi í gærkvöldi vegna gruns um líkamsárás. „Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Árásarþoli var farinn af vettvangi og voru áverkar sagðir minniháttar,“ segir í dagbók lögreglu.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Sjá meira