Erlent

Trump stoltur af NASCAR en reiður út í NFL

Samúel Karl Ólason skrifar
Á undanförnum dögum hafa mótmælin fengið mun meiri athygli en áður og má rekja það til tísta og ummæla Trump.
Á undanförnum dögum hafa mótmælin fengið mun meiri athygli en áður og má rekja það til tísta og ummæla Trump. Vísir/Getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að einhverjir áhorfendur hafi púað á þá íþróttamenn sem fóru niður á annað hnéið þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna var spilaður fyrir leiki í NFL-deildinni í gær. Hann segist vera stoltur af NASCAR og stuðningsmönnum íþróttarinnar. Þeir sætti sig ekki við að fáni Bandaríkjanna og ríkið sjálft sé „vanvirt“.

Í röð tísta nú í morgunsárið lýsti forsetinn því ranglega yfir að umrædd mótmæli, að fara niður á annað hnéið, komi kynþáttafordómum ekkert við. Hann sagði málið snúa að virðingu fyrir Bandaríkjunum, þjóðsönginum og fánanum. Þá sagði Trump að forsvarsmenn NFL-deildarinnar yrðu að virða það.

Coling Kaepernick, þáverandi leikmaður 49ers frá San Francisco byrjaði mótmælin í fyrra. Þeim hefur eingöngu verið ætlað að benda á og fordæma kynþáttahatur og mismunun lögreglu gagnvart þeldökkum. Nokkrir aðrir leikmenn gripu einnig til þess að fara niður á hnéið þegar þjóðsöngurinn var spilaður.

Kaepernick er nú samningslaus og hefur ekkert lið verið tilbúið til að gera samning við hann og er talið að rekja megi það til mótmæla hans.

Á undanförnum dögum hafa mótmælin fengið mun meiri athygli en áður og má rekja það til tísta og ummæla Trump. Í rauninni byrjaði þetta á ummælum forsetans í Alabama á föstudaginn þar sem hann kallaði þá sem hafa mótmælt eins og Kaepernick „tíkarsyni“ og sagði að réttast væri að reka þá úr NFL-deildinni.

Hann hvatti fólk til að yfirgefa leikvanga ef þau yrðu vitni að þessum mótmælum.

Þá stigmagnaðist þetta þegar körfuboltaleikmaðurinn Stephen Curry neitaði boði um að fara í Hvíta húsið og hitta Donald Trump.

Sjá einnig: Bandarískar íþróttastjörnur fordæma forsetann: „Heiður að heimsækja Hvíta húsið þangað til þú birtist“

Forsetinn brást reiður við því að sagði að heimsóknarboðið hefði verið dregið til baka.

Í kjölfarið mótmæltu margir leikmenn NFL með því að fara niður á hnéið og aðrir læstu höndum saman í sameiningu. Eigendur NFL-liða hafa einnig gagnrýnt forsetann fyrir ummæli sín.

Sjá einnig: Leikmennirnir létu ekki sjá sig þegar þjóðsöngurinn var spilaður

Nokkrir leikmenn NFL segja skoðun sína.

Eigendur NASCAR-liða eru þó ekki gagnrýnir á forsetann. Þess í stað hafa nokkrir þeirra lýst yfir stuðningi við þá kröfu forsetans að reka eigi þá sem mótmæla. Jafnvel ætti að reka þá úr landi. Einn eigandi NASCAR-liðs sagði að allir sem ynnu hjá sér ætti að bera virðingu fyrir Bandaríkjunum.

„Svo margir hafa fórnað lífi sínu fyrir ríkinu. Þetta eru Bandaríkin,“ sagði Richard Childress.

Einn frægur ökumaður sem er meðlimur frægðarhallar NASCAR, Richard Petty, sagði að reka ætti alla þá sem standa ekki þegar þjóðsöngurinn sé spilaður úr landi.

„Hvað kom þeim þangað sem þeir eru? Jú, Bandaríkin,“ sagði Petty.

Donald Trump segir skoðun sína ekki byggja á fordómum og að það geri mótmælin ekki heldur.

En getur það verið rétt hjá forsetanum að kynþáttur komi málinu ekki við? Gagnrýni Trump hefur að mestu snúið að NFL- og NBA-deildunum þar sem þeldökkir leikmenn eru í meirihluta. Hins vegar eru fáir ef einhverjir þeldökkir ökumenn í NASCAR.

Þá hefur forsetinn snúið smávægilegum og friðsömum mótmælum gegn kynþáttahatri upp í það að mótmælendurnir séu að vanvirða Bandaríkin.

Eins og blaðamaður Washington Post bendir á hefur Trump ítrekað notast við orðalag sem rasistar og nýnasistar þekkja og er því sérstaklega miðað til þeirra. Hann talar til dæmis oft um „arfleifð okkar“ og sagði umrædd mótmæli meðal annars vera árás á þá arfleifð.

Einnig má benda á það að Trump sagði fyrir nokkrum vikum að „margt gott fólk“ hefði verið meðal rasista og nýnasista sem gengu um götur Charlottesville en einn þeirra keyrði inn í hóp gagnmótmælenda og ung kona dó. Kaepernick og félaga kallar hann hins vegar tíkarsyni.

Á vef Snopes er bent á að leikmenn NFL-deildarinnar þurftu ekki að standa á vellinum þegar þjóðsöngurinn var spilaður fyrir en árið 2009. Þá segja reglur NFL-deildarinnar ekki til um að leikmönnum sé ætlað að standa á vellinum þegar þjóðsöngurinn er spilaður, heldur eru þeir hvattir til þess.

Blaðamaður Boston Globe segir frá ummælum talsmanns NFL-deildarinnar.

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×