Ætla ekki í meiðyrðamál við bæjarstjóra Ísafjarðar 13. september 2017 10:00 Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ?Ísafjarðarbæjar
Stjórnsýsla Bæjarráð Ísafjarðarbæjar sé enga ástæðu til að biðjast afsökunar á ummælum bæjarstjórans, Gísla Halldórs Halldórssonar, sem nefndarmenn í starfshópi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumörkun í fiskeldi tóku óstinnt upp. Bæjarstjórinn hafði áður hafnað kröfu nefndarmannanna um opinbera afsökunarbeiðni sem Gísli lét falla á fundi bæjarstjórnar. Til umræðu á fundinum voru tillögur starfshópsins um stefnumótun í fiskeldi en nefndarmenn litu svo á að í ummælum Gísla fælist gróf og ósönn ásökun um að fulltrúi veiðiréttarhafa og fulltrúar laxeldisfyrirtækjanna hefðu sýnt af sér óheilindi og óheiðarleika í störfum. Vísuðu þeir sérstaklega til fullyrðinga bæjarstjóra um að framangreindir fulltrúar hafi „plottað“ og haft „hrossakaup“ sem leiddu til þeirrar niðurstöðu að ekki yrði leyft sjókvíaeldi í Ísafjarðardjúpi. Óðinn Sigþórsson, Guðmundur Gíslason og Kjartan Ólafsson fóru fram á afsökunarbeiðni frá Ísafjarðarbæ og var málið tekið fyrir á fundi bæjarráðs á mánudag. Þar bókar bæjarráð að það vilji árétta að bæjarstjóri beri ábyrgð á eigin ummælum á bæjarstjórnarfundi, ekki bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. „Jafnframt vill bæjarráð vekja athygli á að það hefði ekki átt að þurfa að koma nefndarmönnum á óvart að tillaga þeirra um að loka Ísafjarðardjúpi fyrir laxeldi væri umdeild og myndi skapa miklar umræður. Nefndarmenn hljóta að hafa gert sér grein fyrir því.“ Í bréfi sínu útilokuðu Óðinn, Guðmundur og Kjartan ekki að höfða meiðyrðamál á hendur bæjarstjóranum ef ekki yrði orðið við kröfu þeirra um afsökunarbeiðni. Óðinn segir í samtali við Fréttablaðið að hann telji þó að ekki muni koma til þess. „Okkar markmið var fyrst og fremst að hnekkja þessum ósanna áburði á opinberum vettvangi og ég held að það hafi tekist fullkomlega. Það tekur því ekki að vera að eltast við menn fyrir dómstólum.“ – smj
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Fleiri fréttir Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Sjá meira