Þrætti fyrir ofsaakstur í Ártúnsbrekku og slapp við refsingu Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. júlí 2017 16:01 Maðurinn ók niður Ártúnsbrekku og inn á Reykjanesbraut. Visir/Pjetur
Ökumaður hefur verið sýknaður af ákæru um hraðaakstur vegna þess að lögreglu tókst ekki að sanna að hann hafi verið þar á ferð. Manninum var gefið að sök að hafa ekið bíl sínum, hvítum Audi Q5, á 114 kílómetra hraða niður Ártúnsbrekku í Reykjavík þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Lögreglumenn veittu bifreiðinni eftirtekt þar sem, að þeirra sögn, henni hafi „greinilega vera ekið mun hraðar en öðrum bifreiðum.“ Eftir að úr brekkunni var komið beygði ökumaðurinn inn á Reykjanesbraut áður en hann var stöðvaður á Skemmuvegi í Kópavogi. Maðurinn neitaði sök við lögreglumennina og sagðist ekki vita hvers vegna lögreglan hefði stöðvað hann. Þá sagðist hann fyrir dómi ekki minnast þess að lögregla hafi sýnt honum mældan hraða bifreiðarinnar eftir að hann var stöðvaður - eins og lögreglumennirnir vitnuðu til um.Maðurinn er sagður hafa ekið Audi Q5, eins og þessum hér, of hratt í Ártúnsbrekku.WikipediaQ5 eða Q7? Lögreglumennirnir ítrekuðu fyrir dómi að engin vafi léki á því að rétt bifreið hefði verið stöðvuð. Hefði verið minnsti vafi um að þetta væri sama bifreiðin hefði hún ekki verið stöðvuð. Lögreglumennirnir voru þó ekki sammála um á hvernig bíl maðurinn ók. Annar þeirra taldi að um hvíta Audi Q5 bifreið hafi verið að ræða en hinn greindi frá því að hún hafi verið af gerðinni Q7. Hvorugur lögreglumannanna kvaðst fyrir dómi hafa greint skráningarnúmer þeirrar bifreiðar sem þeir mældu og ekið var hraðar en öðrum. Fram kemur í vettvangsskýrslu lögreglu að sú bifreið sem mæld var hafi verið í 620 metra fjarlægð frá kyrrstæðri lögreglubifreiðinni sem lögreglumennirnir sátu í. Þá hafi þeir einnig misst sjónar á bifreiðinni um stundarsakir. Ökumaðurinn, sem flutti málið sjálfur fyrir dómi, lagði fram upplýsingar frá Samgöngustofu sem sýndu að 47 hvítar Audi Q5 bifreiðar séu skráðar og í umferð á landinu. Þá hafi 383 bifreiðar ekið um Ártúnsbrekku við Elliðaaár á því 15 mínútna tímabili sem hann ætti að hafa ekið um brekkuna. „Að virtu öllu því sem nú hefur verið rakið og í ljósi eindreginnar og staðfastrar neitunar ákærða, svo og þess að ákærði var ekki stöðvaður í beinu framhaldi af ætluðu hraðakstursbroti þykir slíkur vafi leika á sekt ákærða að sýkna ber hann af ætluðu broti,“ segir í dómnum sem lesa má hér.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira