Segir dómsmálaráðherra seka um lýðskrum með viðbrögðum sínum við máli Roberts Downey Nadine Guðrún Yaghi skrifar 17. júní 2017 19:15
Hæstaréttarlögmaður segir dómsmálaráðherra seka um lýðskrum með viðbrögðum sínum við máli Roberts Downey. Hann segir Robert hafa leitað sér aðstoðar til sálfræðings og að hann eigi rétt áöðru tækifæri eins og aðrir eftir afplánun dóms. Í vikunni komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að veita skyldi Robert Downey, áður Róberti Árna Hreiðarssyni, lögmannréttindi sín á ný en hann missti þau eftir dóm fyrir kynferðisofbeldi gegn fjórum stúlkum árið 2008. Robert fékk uppreist æru í september í fyrra. Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður, flutti kröfuna um lögmannréttindi Roberts, fyrir dómi. Fyrir héraðsdómi lagðist ríkissaksóknari gegn því að Robert fengi lögmannsréttindi sín á ný. Þá mælti lögmannafélag Íslands ekki m eð því að Robert fengi réttindi sín. Jón Steinar segir að það sé óréttlátt sem og viðbrögð almenning en því en því hefur verið haldið fram að óeðlilegt sé að Robert geti tekið að sér verjendastörf eða störf réttargæslumanns í kynferðisbrotamálum. „Þetta eru málflutningsréttindi sem hann er að fá aftur sem tengjast ekkert þessum ömurlegu brotum sem hann framdi á sínum tíma,“ segir Jón Steinar og bætir við að Robert eigi rétt á að fá annað tækifæri enda hafi hann unnið í sínum málum. „Hann til dæmis fór til sálfræðings og það eru til vottorð um það í málinu að hann hafi leitað sér slíkrar aðstoðar og það virðist hafa gengið mjög vel. Athugaðu það að hann er búin að ganga hér laus í mörg mörg ár og er ekkert búin að brjóta af sér. Hann brýtur ekkert frekar af sér þó hann fái lögmannsréttindi,“ segir Jón Steinar. Þá er Jón Steinar mjög gagnrýnin á orð Sigríðar Á Anderssen, dómsmálaráðherra, um að henni finnist koma til greina að skoða það sérstaklega að undanskilja tiltekin brot uppreist æru. „Þeir sem stjórna þjóðfélaginu og eru hér í ábyrgðarstöðu mega ekki gerast sekir um svona lýðskrum og segja bara eitthvað því þeir halda að það falli í kramið hjá fólki. Auðvitað er þetta bara þannig að menn sem brjóta af sér á þessu sviði þeir hljóta bara sína dóma og þeir geta verið þungið eftir atvikum, þetta var nú þungur dómur miðað við brotin og allir sem töldu það, og þegar þeir eru búnir að afplána þá eigum við að gefa þeim kost á að finna leiðina til baka,“ segir Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður.UppfærtSíðustu ummæli Jóns Steinars eiga einnig við um forseta Ísland, Guðna Th Jóhannessen, í viðtali á dögunum en ekki einungis um dómsmálaráðherra.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Sjá meira