Vinsældir grænu tunnanna aukast í borginni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. maí 2017 12:15
Þrettán grænar tunnur undir plast eru að jafnaði pantaðar hjá Reykjavíkurborg í hverri viku og hefur þeim fjölgað um 250 frá áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni sem fylgir hér á eftir. Vinsældir grænna tunna undir plast og blárra undir pappír hafa aukist verulega í Reykjavík á þessu ári. Gráum tunnum fyrir blandaðan heimilisúrgang er skilað á móti. Þetta gefur til kynna aukna flokkun á heimilum en það er ódýrara að hafa tunnur undir endurvinnsluefni en gráa tunnu fyrir blandaðan úrgang. Mörg heimili skila einnig endurvinnsluefnum á grenndar- og endurvinnslustöðvar. 13 grænar tunnur eru að jafnaði pantaðar í hverri viku og hefur þeim fjölgað um 250 frá áramótum. Um 150 bláar tunnur hafa verið pantaðar á árinu eða átta að meðaltali á viku. Gráum tunnum fækkar um eina á viku og spartunnum fjölgar um eina. Margir skila á grenndarstöðvar Valkostirnir eru fleiri og hafa margir borgarbúar valið að skila endurvinnsluefnum á grenndar- og endurvinnslustöðvar í stað þess að fá tunnu við heimilið og hafa til dæmis skil á plasti þangað aukist um 120% frá árinu 2015. Um 48.200 tunnur eru við um 50.000 heimili í borginni og skiptast í 28 þúsund gráar, þrjú þúsund spartunnur, hvor tveggja undir blandaðan úrgang. 14 þúsund bláar undir pappírsefni og þrjú þúsund grænar undir plast. Söfnun á plasti hæst í Reykjavík Ef miðað er við söfnun á plasti á höfuðborgarsvæðinu á þessu ári þá er söfnun á plasti hvað hæst í Reykjavík eða 5,2 kíló á íbúa á ári. Græna tunnan og grenndargámar taka við um 2,9 kílóum að meðaltali á hvern íbúa í Reykjavík á meðan endurvinnslustöðvar taka við 2,3 kílóum. Samkvæmt greiningu SORPU þá skilaði árangur af söfnun í poka í gráu tunnuna á Seltjarnarnesi 4,8 kíló á íbúa. Það er því um 15% meiri ávinningur að söfnun í sér tunnu undir plast en í poka í gráu tunnuna. Grenndarstöðvar hafa tekið við 53% meira á þessu ári en á sama tíma og í fyrra eða 70 tonnum í stað 33. Veruleg tækifæri eru í frekari söfnun á plasti og skilum til endurvinnslu því talið er 30 kíló falli til frá hverjum íbúa á ári.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira