Fjögur bítast um franska forsetastólinn Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. apríl 2017 07:00 Hamon, Macron, Fillon, Melenchot og Le Pen bera höfuð og herðar yfir aðra frambjóðendur. vísir/epa
Frönsku forsetakosningarnar hefjast 23. apríl næstkomandi. Nýjustu kannanir benda til þess að kosningarnar verði spennandi en óvæntur frambjóðandi hefur bæst í hóp þeirra sem gætu hreppt hnossið. Alls eru tólf í framboði en framan af virtist baráttan ætla að standa á milli Evrópuþingmannsins Marine Le Pen, frambjóðanda Þjóðarfylkingarinnar, og Repúblikanans Francois Fillon. Stuðningur við Fillon hefur hins vegar dalað frá því í upphafi árs en samtímis aukist við Emmanuel Macron. Macron býður sig fram fyrir afl sem kallast Á hreyfingu! Benoit Hamon, frambjóðandi Sósíalista, hefur reynt hvað hann getur til að bjarga framboði sínu en hingað til hefur það ekki gengið sem skyldi. Fylgi hans dalar jafnt og þétt. Hamon er flokksbróðir sitjandi forseta, Francois Hollande, en ljóst er að eitthvað mikið þarf að gerast til að Hamon komist í stól forseta. Öllum að óvörum hefur fylgi kommúnistans Jean-Luc Melenchon aukist mjög á síðustu dögum en hann hefur þótt standa sig vel í kappræðum hingað til. Hneykslismál hafa einkennt kappið hingað til. Í upphafi árs hrapaði fylgi við Francois Fillon eftir að hann var sakaður um að hafa útvegað eiginkonu og börnum sínum laun úr opinberum sjóðum fyrir litla sem enga vinnu. Þá var Macron sakaður um að hafa haldið ítrekað fram hjá eiginkonu sinni. Í nýjustu könnunum eru Le Pen og Macron hnífjöfn með tæplega fjórðungsstuðning. Melenchon er nú þriðji með átján prósent og Fillon prósenti á eftir honum. Fylgi Hamon er komið niður fyrir tíu prósent eftir að hafa verið rúmlega fimmtán prósent í upphafi febrúar. Þrátt fyrir að Le Pen hafi undanfarið notið mests fylgis er talið ólíklegt að hún verði forseti. Hljóti enginn frambjóðandi meira en helming atkvæða í fyrri umferðinni er kosið að nýju milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. Skoðanakannanir sýna að bæði Macron og Fillon myndu hafa nokkuð öruggan sigur í framlengingu. Hins vegar er óvíst hvað gæti gerst ef Melenchon yrði annar tveggja efstu.Gamall refur Jean-Luc Melenchon er 65 ára gamall og starfaði lengi í Sósíalistaflokknum en sagði skilið við hann árið 2008. Í kjölfarið stofnaði hann Vinstriflokkinn. Meðal stefnumála hans er að lækka skattbyrði láglaunafólks og setja sérstakan skatt á ríkasta hálfa prósentið. Alls muni 90 prósent tekna þeirra renna til ríkisins. Að auki skal þak sett á laun stjórnenda fyrirtækja. Þá er það skoðun hans að Donald Trump sé jafn slæmur og aðrir forsetar Bandaríkjanna hingað til. Þá telur hann Rússland náttúrulegan bandamann Frakka og að NATO sé óþarft.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Sjá meira