Bæjarráð Akureyrar áfrýjar máli Snorra Óskarssonar til Hæstaréttar Sveinn Arnarsson skrifar 8. desember 2017 07:00 Snorri Óskarsson grunnskólakennari ásamt Einari Gauti lögmanni í dómi. vísir/auður
Bæjarráð Akureyrar ákvað á fundi sínum í gær að áfrýja dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli gegn Snorra Óskarssyni, fyrrverandi grunnskólakennara bæjarins. Snorri segir málið hið undarlegasta.Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðsSnorra var vikið úr starfi sem grunnskólakennari í Brekkuskóla á Akureyri í júlí árið 2012 vegna ummæla sem hann hafði uppi um samkynhneigð á eigin vefsvæði. Töldu bæjaryfirvöld skoðanir hans og skrif um samkynhneigð vera þess valdandi að hann gæti ekki starfað lengur við barnakennslu. Uppsögn Snorra hefur verið dæmd ólögmæt í ráðuneytinu og hjá dómstólum. Héraðsdómur dæmdi uppsögnina í síðasta mánuði og dæmdi Snorra 6,5 milljónir króna í bætur. Formanni bæjarráðs finnst þessi upphæð of há. „Við fengum á fundinn álit lögfræðings sem taldi rétt að áfrýja. Það er mikilvægt að svona mál fari alla leið í dómskerfinu. Ég veit svo sem ekki að hvaða niðurstöðu Hæstiréttur muni komast en okkur finnst bæturnar í þessu máli heldur hærri en við reiknuðum með og fordæmi eru um,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs. Snorri segir þetta mál ótrúlegt. „Ég hef unnið málið á öllum stigum til þessa. Ég vil heldur láta dæma mér litlar bætur en að semja um þær við bæinn,“ segir Snorri. „Þetta er bænum til ósóma að vera dæmdur ítrekað fyrir handvömm í þessu máli og hafa verið með niðrum sig frá upphafi. Ég er hins vegar auðvitað tilbúinn að fyrirgefa, en það er með fyrirgefninguna að henni verður að fylgja iðrun,“ bætir Snorri við og segist geta beðið fyrir fyrirgefningunni, því þeir viti eigi hvað þeir gjöra.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Sjá meira