Heitt vatn í Reykjavík kostar nú 27 prósent meira en vatn í Mosfellsbæ Garðar Kjartansson skrifar 30. desember 2017 07:00 Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Um 40 prósent af heita vatni Veitna kemur frá Mosfellsbæ. Vísir/Eyþór „
Það er að fjölga íbúum í bænum og verið að selja meira heitt vatn. Afkoma hitaveitunnar var með þeim hætti að það er svigrúm til lækkunar núna um áramótin,“ segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, þar sem verð á heitu vatni lækkar um 5 prósent 1. janúar. Eftir breytinguna verður verð á útseldum rúmmetra af heitu vatni frá Hitaveitu Mosfellsbæjar 112,88 krónur. Samkvæmt gildandi gjaldskrá Veitna, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur, kostar heitt vatn 143,09 krónur. Heita vatnið er þannig 21,1 prósenti ódýrara í Mosfellsbæ, eða með öðrum orðum 26,8 prósentum dýrara hjá Veitum. Sveitarfélög þar sem heitt vatn býðst á áðurnefndu verði frá Veitum í þéttbýli eru, auk Reykjavíkur, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Akranes, Borgarbyggð, Stykkishólmur, Hveragerði, Þorlákshöfn, Hvolsvöllur og Hella. Haraldur segir tilgang opinberra veitna ekki þann að skila einhverjum gríðarlegum afgangi. „Þetta er náttúrlega bara samfélagsleg þjónusta sem snýst um að dreifa heitu vatni til íbúanna á því verði sem hægt er með okkar rekstri,“ segir bæjarstjórinn. Mosfellsbær kaupir heitt vatn í heildsölu af Veitum samkvæmt gömlum samningi. „Þarna eru samningar að baki sem taka tillit til stöðunnar og eru væntanlega nokkuð hagstæðir fyrir þá,“ segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, aðspurð um hinn mikla verðmun. Málið snúist þó væntanlega fyrst og fremst um mismun á rekstri fyrirtækjanna tveggja þótt hún þekki ekki rekstur Hitaveitu Mosfellsbæjar og tjái sig ekki um hann. „Þeir eru í annarri stöðu en við, eru náttúrlega með hitaveituna í bakgarðinum og þurfa að flytja vatnið mun styttra,“ bendir Ólöf á. „Þeir eru líka með rótgróið kerfi og hafa ekki í langan tíma þurft að fjárfesta í því að sækja meira vatn á meðan við höfum þurft að fara í verulegar fjárfestingar.“ Þessar fjárfestingar felist til dæmis að hluta í Nesjavallavirkjun og Hellisheiðarvirkjun og í endurnýjun Reykjaæða ofan úr Mosfellsbæ. „Þetta hafa verið dýr og stór verkefni sem enn er verið að greiða niður.“ Breytingar á gjaldskrá Veitna verða kynntar eftir áramót.
Mest lesið Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira