Upphitun fyrir leiki dagsins í enska │ Myndband Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. desember 2017 09:00
Jólafríið er búið hjá leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar, en tuttugasta umferðin rúllar af stað með átta leikjum í dag. Í hádeginu mætast Tottenham og Southampton á Wembley. Þrenna Harry Kane á móti Burnley lyfti þeim hvítklæddu upp í fimmta sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Liverpool í fjórða sætinu. Southampton er um miðja deild, í 13. sæti. Sex leikir hefjast klukkan þrjú. Bournemouth, sem steinlá fyrir Manchester City á Þorláksmessu, fær David Moyes og lærisveina hans í West Ham í heimsókn í fallslag. Englandsmeistarar Chelsea fá nýliða Brighton í heimsókn, Stoke fer norður til Huddersfield og Watford tekur á móti Leicester. Jóhann Berg Guðmundsson fer með sínum liðsfélögum til Old Trafford og mætir Manchester United. United er enn í öðru sæti deildarinnar, en missti City 13 stigum á undan sér með jafnteflinu í síðustu umferð. Burnley datt niður í sjöunda sætið með ósigrinum gegn Tottenham. Alan Pardew hefur aðeins verið mánuð í starfi hjá West Brom en er nú þegar á hálum ís, enda liðið ennþá í fallsæti og aðeins stigi frá botninum. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton mæta á The Hawthorns í dag og vonast til að sýna meiri sköpunargleði heldur en í markalausa jafnteflinu við Chelsea. Lokaleikur dagsins er svo viðureign Liverpool og botnliðs Swansea. Jurgen Klopp situr með sína menn í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Chelsea. Upphitunarmyndband fyrir leiki dagsins má sjá í spilaranum hér að ofan.Leikir dagsins: 12:30 Tottenham - Southampton, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 15:00 Bournemotuh - West Ham 15:00 Chelsea - Brigthon 15:00 Huddersfield - Stoke 15:00 Manchester United - Burnley, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 15:00 Watford - Leicester 15:00 West Bromwich Albion - Everton 17:30 Liverpool - Swansea, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 19:30 Messan
Enski boltinn Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Hættir með landsliðinu Fótbolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira