Gagnrýna að borgin eigi Höfða Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 19. janúar 2017 07:00 Höfði keppir við aðrar malbikunarstöðvar hérlendis um verkefni fyrir opinbera aðila. vísir/pjetur
Viðskiptaráð Íslands birti í gær samantekt á markaðshlutdeild Malbikunarstöðvarinnar Höfða, sem Reykjavíkurborg á auk þess að skipa í stjórn fyrirtækisins. „Eignarhaldið veldur því að borgin er í samkeppni við einkaaðila um að fá úthlutað verkefnum frá sjálfri sér. Þetta fyrirkomulag virðist hafa hjálpað Höfða í samkeppninni. Markaðshlutdeild Höfða nam þannig 24% í útboðum Vegagerðarinnar en 73% í útboðum Reykjavíkurborgar á árunum 2008–2016, sé miðað við fjölda samþykktra útboða,“ segir meðal annars í samantektinni. Eignarhald Reykjavíkurborgar á Höfða hefur verið rökstutt með þeim hætti að fákeppni ríki á þessum markaði. „Rökstuðningur þessi stenst ekki nánari skoðun,“ segir orðrétt. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2015 námu tekjur fyrirtækisins 1,7 milljörðum króna og hagnaður ríflega 100 milljónum króna. Heildareignir voru rúmur milljarður króna. Ef rekstur fyrirtækisins verður erfiður getur komið til þess að þessi verðmæti þurrkist út, með tilheyrandi tjóni fyrir skattgreiðendur. Borgin hefur lengi verið eitt skuldsettasta sveitarfélag landsins og skuldaði yfir 300 milljarða króna samkvæmt ársreikningi 2015. „Það ætti því að vera forgangsmál hjá borginni að losa um óþarfa bindingu á fjármunum og nota afraksturinn til niðurgreiðslu skulda,“ segir í samantektinni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fleiri fréttir Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Fjármálaráðherra vinni gegn fólkinu Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Sjá meira