Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í uppgjöri Ítalíumeistaranna og toppliðs Seríu A deildarinnar í kvöld.
Heimamenn í Juventus voru meira með boltann og áttu mun fleiri marktækifæri en náðu ekki að koma boltanum í netið. Inter átti aðeins eitt skot á markrammann í leiknum.
Inter Milan er enn á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu á Napólí og Juventus.
Markalaust í toppslagnum á Ítalíu
