Innlent

Stafalogn og gnótt vatns afstýrði altjóni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
vísir/gva
Stórtjón varð þegar hluti fiskþurrkunar að Miðhrauni í Eyja- og Miklaholtshreppi brann til kaldra kola í gær. Góð veðurskilyrði björguðu því að ekki fór verr.

„Slökkvistarf gekk mjög vel. Við náðum að verja tengibyggingu sem tengdi saman gamla og nýja húsið og því slapp hið nýrra,“ segir Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð.

Blankalogn var á svæðinu auk þess sem unnt var að stífla læk á staðnum og brúka vatn úr honum til slökkvistarfs. Þá var beltagrafa á svæðinu sem notuð var til að brjóta mönnum leið inn í húsið. Ríflega fjörutíu manns komu að slökkvistarfinu. Þeir sem komu lengst að voru frá Suðurnesjum.

„Þeir komu hingað með svokallaðan loftbanka sem gerði það að verkum að hægt var að fylla á kúta reykkafaranna strax. Það bjargaði miklu,“ segir Bjarni.

Húsið sem brann er gjörónýtt. Það hýsti alla þurrkunarklefa og stóran hluta vinnslunnar. Leiða má líkur að því að kviknað hafi í austurenda hússins þar sem sá vestari var heillegri. Eldsupptök eru ekki ljós.

„Þetta eru eflaust einhver hundruð milljóna sem töpuðust þarna,“ segir Sigurður Hreinsson, eigandi þurrkunarinnar. Með húsinu fuðraði þrjátíu ára ævistarf hans upp auk þess sem á þriðja tug manna hafa atvinnu af þurrkuninni.

Vörubílstjóri varð eldsins fyrst var síðla nætur. Sigurður segir að slökkviliðið hafi verið fljótt á staðinn þó að hann hafi upplifað biðina sem heila eilífð. Á meðan horfði hann á eldinn magnast. „Eldurinn hafði kraumað í einhvern tíma áður en hann blossaði upp um alla verksmiðju. Þá kviknaði í reyknum. Það var eins og fleiri þúsund lítrum af olíu hefði skyndilega verið sturtað yfir allt,“ segir Sigurður.

Hann er slökkviliðsmönnunum þakklátur fyrir að ekki fór verr. „Hér var stafalogn og mennirnir stóðu sig eins og hetjur. Það er hálf ótrúlegt að í sitthvorum enda hússins sem fór standa skúrar, annar með inntakinu fyrir heita vatnið og hinn fyrir rafmagnið. Það tókst að verja þá báða. Það var lán í þessari ömurlegu ógæfu.“

„Enginn dó. Það brunnu aðeins hlutir sem hægt er að byggja upp aftur,“ segir Sigurður að lokum.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×