Ranieri: Þetta eiga leikmennirnir skilið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. maí 2016 08:15 Stuðningsmenn Leicester fagna í gær. Vísir/Getty
Claudio Ranieri, ítalskur stjóri Leicester City, hrósaði leikmönnum sínum eftir að liðið varð enskur meistari í gær. Öskubuskuævintýri Leicester, sem var næstum fallið úr ensku úrvalsdeildinni í fyrra, er því fullkomnað. Leicester varð í gær meistari þegar Tottenham mistókst að vinna Chelsea. Leicester var ekki að spila en leikmenn söfnuðust saman á heimili Jamie Vardy og fögnuðu gríðarlega þegar niðurstaðan lá fyrir. Sjá einnig: Sjáðu leikmenn Leicester tryllast af gleði Sjálfur var Ranieri á Ítalíu í gær í heimsókn hjá móður sinni. En hann sneri aftur til Englands í gærkvöldi, um svipað leyti og niðurstaðan vrð ljós. „Ég er svo stoltur,“ sagði Ranieri við enska fjölmiðla. „Ég er ánægður fyrir hönd leikmanna minna, fyrir stjórnarformanninn, alla starfsmenn, stuðningsmenn og allt Leicester-samfélagið. Þetta er ótrúleg tilfinning og ég er svo ánægður fyrir hönd allra.“ Sjá einnig: Morgan: Mér hefur aldrei liðið svona Hann viðurkennir fúslega að hafa aldrei reiknað með því að Leicester yrði meistari, hvað þá strax á hans fyrsta ári með félagið. „Ég er raunsæismaður. Ég vildi bara vinna einn leik í einu og hjálpa leikmönnum mínum að bæta sig í hverjum leik. Aldrei taldi ég að þetta myndi leiða til þess.“ Sjá einnig: Tottenham fór á taugum og Leicester er Englandsmeistari „Leikmennirnir hafa verið frábærir. Það var einbeiting þeirra, vilji og andi sem gerði þetta mögulegt. Þeir börðust hverjir fyrir aðra í hverjum einasta leik og ég elska að sjá það hjá leikmönnum mínum. Þeir eiga skilið að verða meistarar.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu leikmenn Leicester tryllast af gleði Leikmenn Leicester City hittust heima hjá framherjanum Jamie Vardy í kvöld og fylgdust með leik Chelsea og Tottenham. 2. maí 2016 23:06 Ranieri verður síðasti maðurinn til að frétta af Englandsmeistaratitlinum í kvöld Knattspyrnustjóri Leicester getur ekki horft á leik Chelsea og Tottenham því hann verður í háloftunum. 2. maí 2016 11:30 Tottenham fór á taugum og Leicester er Englandsmeistari Öskubuskuævintýri Leicester City var fullkomnað í kvöld er liðið varð Englandsmeistari. Tottenham gerði þá jafntefli gegn Chelsea og það þýðir að liðið getur ekki lengur náð Leicester. 2. maí 2016 21:00 Morgan: Mér hefur aldrei liðið svona vel Wes Morgan, fyrirliði Leicester, fagnaði með félögum sínum heima í stofu í kvöld og verður að fagna eitthvað fram eftir nóttu þar sem Leicester er orðið Englandsmeistari. 2. maí 2016 21:47 Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Fleiri fréttir Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Sjá meira
Sjáðu leikmenn Leicester tryllast af gleði Leikmenn Leicester City hittust heima hjá framherjanum Jamie Vardy í kvöld og fylgdust með leik Chelsea og Tottenham. 2. maí 2016 23:06
Ranieri verður síðasti maðurinn til að frétta af Englandsmeistaratitlinum í kvöld Knattspyrnustjóri Leicester getur ekki horft á leik Chelsea og Tottenham því hann verður í háloftunum. 2. maí 2016 11:30
Tottenham fór á taugum og Leicester er Englandsmeistari Öskubuskuævintýri Leicester City var fullkomnað í kvöld er liðið varð Englandsmeistari. Tottenham gerði þá jafntefli gegn Chelsea og það þýðir að liðið getur ekki lengur náð Leicester. 2. maí 2016 21:00
Morgan: Mér hefur aldrei liðið svona vel Wes Morgan, fyrirliði Leicester, fagnaði með félögum sínum heima í stofu í kvöld og verður að fagna eitthvað fram eftir nóttu þar sem Leicester er orðið Englandsmeistari. 2. maí 2016 21:47