Áður óþekktur skaðvaldur greindist í rósum Svavar Hávarðsson skrifar 26. janúar 2016 07:00 Helsti hýsillinn er kartöflur en tómataplöntur eru einnig viðkvæmar. vísir/rósa
Nýr plöntusjúkdómur hefur greinst á Íslandi. Skaðvaldurinn er baktería sem barst til landsins með innflutningi á rósagræðlingum. Bakterían herjar á ýmsar plöntutegundir og getur valdið miklum afföllum í m.a. kartöflu- og tómatarækt. Í kjölfar greiningarinnar greip Matvælastofnun til varúðarráðstafana, í samráði við ræktanda og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, til að hefta útbreiðslu smits og standa vonir til þess að tekist hafi að uppræta sjúkdóminn. Í frétt Matvælastofnunar segir að undir lok síðasta árs hafi komið upp sjúkdómur í rósaplöntum í gróðurhúsi á Suðurlandi. Við nánari rannsókn greindist bakteríutegundin Ralstonia í rósunum og er það í fyrsta sinn sem bakterían greinist á Íslandi. Hún barst til landsins með innflutningi á rósagræðlingum frá Hollandi síðasta sumar. Í Hollandi varð fyrst vart við sjúkdóminn í september – þegar voru gerðar ráðstafanir þar og eru ekki taldar líkur á að sjúkdómurinn hafi borist hingað með fleiri sendingum. Þessi bakteríutegund er skilgreind sem skaðvaldur hér á landi. Kartafla er helsti hýsill bakteríunnar en hún getur einnig sýkt aðrar plöntur. Sýkingin lýsir sér þannig að leiðslukerfi plöntunnar stíflast af bakteríunum og laufblöð byrja að visna neðst á sýktum plöntum og færist sýkingin svo ofar með þeim afleiðingum að plantan veslast upp. Matvælastofnun greip til varúðarráðstafana og lagði fram áætlun, í samráði við ræktanda og Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, til að uppræta sjúkar plöntur og hindra frekari dreifingu.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Erlent Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Innlent Fleiri fréttir Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Sjá meira