Innlent

Lofaði miðum á landsleik, OMAM-tónleika og iPhone 6+ en aldrei bárust vörurnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Maðurinn var fastagestur á Bland á síðasta ári og sveik fé út úr fólki um allt land.
Maðurinn var fastagestur á Bland á síðasta ári og sveik fé út úr fólki um allt land. Vísir
Karlmaður á þrítugsaldri sem búsettur er á Akureyri hefur verið ákærður fyrir endurtekin fjársvik á vefsíðunni Bland.is. Sautján manns létu glepjast af lygum mannsins á fyrrnefndri síðu þar sem hlutir ganga kaupum og sölum manna á milli.

Fjársvik mannsins nema tæplega hálfri milljón króna þegar allt er tiltalið en fólk um allt land tapaði fjármunum vegna viðskipta við manninn. Um helmingur fólksins gerir brótakröfu til mannsins til að endurheimta þá fjármuni sem töpuðust.

Fjársvikin eru öll af sama toga. Maðurinn á að hafa ýmist auglýst hluti til sölu og fengið fólk til að greiða fyrir vöruna, eða helminginn af auglýstu verði sem staðfestingu, eða svarað óskum fólks um að kaupa vöru og platað það til að leggja inn á sig fyrir vörunni. Varan barst svo aldrei.

Frá landsleik Íslands og Lettlands.Vísir/Anton Brink
Of Monsters and Men, landsliðið, frystikista og iPhone 6+

Hér verða listuð fjársvikin á Bland.is sem maðurinn er ákærður fyrir. Brotin áttu sér stað á tímabilinu júní til október í fyrra.

1. Auglýsti inneignarnótu í Elko að fjárhæð 40 þúsund krónur og fengið kaupanda til að leggja inn á sig 30 þúsund krónur fyrir henni. Inneignarnótan barst aldrei kaupandanum.

2. Sýndi áhuga að kaupa Zinzino Z-7 kaffivél og fékk seljanda á þrítugsaldri til að senda sér norður í land. Hann hafði sagst vilja greiða 60 þúsund krónur fyrir en greiðslan barst aldrei.

3. Svaraði kalli manns á sextugsaldri í leit að pallloki fyrir Ford Explorer. Sagðist geta selt honum eitt slíkt á 50 þúsund krónur. Maðurinn greiddi helming fjárins til staðfestingar en aldrei barst palllokið.

4. Fékk mann á fimmtugsaldri til að senda sér tölvu ásamt skjá með loforði um að greiða 50 þúsund krónur fyrir hana. Aldrei barst greiðslan.

5. Sveik 100 þúsund krónur út úr manni á sjötugsaldri í dekkjaviðskiptum. Auglýsti vetrardekk og sumardekk til sölu sem maðurinn greiddi fyrir en fékk aldrei.

6. Auglýsti úlpu til sölu sem kona um þrítugt greiddi 12.500 krónur fyrir, sem var helmingur kaupverðsins, en hún fékk úlpuna aldrei senda.

7. Svaraði kalli konu á þrítugsaldri eftir fjórum miðum á landsleik Íslands og Lettlands í undankeppni EM. Konan greiddi 24 þúsund krónur fyrir miðana fjóra en þeir bárust aldrei.

8. Maður á áttræðisaldri var í leit að hjólbörðum á dráttarvél. Ákærði sagðist eiga bæði afturhjólbarða en líka framdekk. Maðurinn lagði 35 þúsund krónur inn á reikning ákærða en fékk hvorki hjólbarða né dekk.

9. Svaraði kalli manns eftir stýri til að nota við tölvuleiki. Bauðst til að selja honum eitt slíkt á 15 þúsund krónur en kaupandinn fékk aldrei stýri.

10. Sveik 23 þúsund krónur af þrítugum karlmanni með loforði um að útvega honum varahluti sem hann vantaði í Volkswagen Golf bílinn sinn.

Einn kaupanda langaði á tónleika með Of Monsters and Men í Hörpu.vísir/getty
11. Sveik 21.500 krónur af manni á sextugsaldri sem hugsðist kaupa af honum felgur á Volvo-inn sinn.

12. Svaraði kalli konu á fimmtugsaldri um miða á tónleika með Of Monsters and Men gegn því að hún legði 10 þúsund krónur inn á hann. Miðarnir bárust aldrei.

13. Fullvissaði tvítuga konu um að hann ætti allar þær skólabækur sem hana vantaði. Hún lagði 15 þúsund krónur inn á hann en fékk engar bækur.

14. Fékk 24 ára konu til að senda sér iPhone 6+ síma frá Reykjavík til Akureyrar og einnig greiða fyrir flutningsgjald á símanum. Hann greiddi hins vegar aldrei þær 80 þúsund krónur sem var uppsett verð.

15. Sveik 25 þúsund krónur af manni á sextugsaldri sem auglýsti eftir afturhlera á Kia Sorento bíl. Fékk hann til að leggja 25 þúsund krónur inn á sig en aldrei barst hlerinn.

16. Lofaði karlmanni á sjötugsaldri tölvu með Windows 7 stýrkikerfi. Sá lagði 20 þúsund krónur inn á hann en fékk enga tölvu.

17. Samþykkti að selja konu á fimmtugsaldri frystikistu á 25 þúsund krónur. Hún lagði hinn en aldrei barst frystikistan.

Auk fjársvikanna er manninum gefið að sök að hafa brotist inn í íbúðarhús norður í landi og stela og nota debetkort manns á sextugsaldri.

Aðalmeðferð var í málinu fyrr í vikunni og má reikna með því að dómur verði kveðinn upp innan fjögurra vikna. Karlmaður hlaut þriggja mánaða fangelsisdóm í febrúar 2014 fyrir fjársvik á Bland.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×