Fyrirtæki aðlagi sig strax að breytingum Svavar Hávarðsson skrifar 18. janúar 2016 07:00 Stórfyrirtæki vega sum hver jafn mikið og heilu þjóðríkin í losun gróðurhúsalofttegunda. nordicphotos/afp
Fjárfestar og forráðamenn fyrirtækja ættu fyrr en seinna að taka stöðu loftslagsmála inn í myndina við ákvörðunartöku sína. Allt bendir til þess að á næstu árum muni kröfur um grænar áherslur, vegna hnattrænnar hlýnunar og loftslagsvandans, hafa mikil áhrif á rekstur fyrirtækja og fjárfestingar. Nú þegar hafa stórfjárfestar breytt fjárfestingastefnu sinni vegna þeirra breytinga sem eru skammt undan, og felast ekki síst í nýjum loftslagssamningi sem undirritaður var af 195 þjóðum á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París í desember (COP21). Í nýbirtri pælingu Hagfræðideildar Landsbankans um niðurstöður ráðstefnunnar og áhrif þeirra á efnahagslíf þjóða segir að ný markmið og reglusetningar á þessu sviði muni hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf í heiminum fyrr en seinna – og næstu áratugina. „Stjórnvöld munu líklega beina aðgerðum sínum að t.d. námurekstri, olíuvinnslu og orkufrekum iðnaði með reglum og aðgerðum sem munu fela í sér mikinn kostnað. Ekki er út í hött að ætla að þessar greinar og fleiri gætu lent í svipaðri stöðu og fjármálageiri heimsins lenti í eftir áföllin í alþjóðlegu fjármálakreppunni,“ og einnig segir að fyrirtæki sem framleiða eða nota mikið af jarðefnaeldsneyti gætu staðið frammi fyrir aukinni skattlagningu og íþyngjandi regluverki og einhver þeirra gætu staðið frammi fyrir því að geta ekki nýtt bókfærðar auðlindir sínar eins og kol og olíu í jörðu. Bent hafi verið á að til að hlýnun haldist undir tveim gráðum, eins og markmið loftslagssamningsins hljóðar upp á, þurfi þriðjungur af olíu-, helmingur af gas-, og meira en 80% af núverandi kolaauðlindum frá 2010 til 2050 að liggja áfram í jörðu um ókomna tíð. Augljóst sé að fyrirtæki í námuvinnslu, þau sem framleiða raforku með kolum og fyrirtæki tengd olíuiðnaði búa við meiri áhættu vegna þessara þátta en ýmis önnur, sem komi til með að hafa áhrif á markaði með skuldabréf fyrirtækja. Norski olíusjóðurinn bregst viðNorski olíusjóðurinn ætlar að selja í 120 fyrirtækjum sem nýta kol. Sjóðurinn ætlar að losa sig við hlutabréf að virði 850 milljarða íslenskra króna vegna breyttrar fjárfestingastefnu. Norska stórþingið hefur ákveðið að sjóðurinn eigi ekki eignir í fyrirtækjum þar sem 30% eða meira af tekjum falla til vegna kolaiðnaðar. Námufyrirtæki og orkufyrirtæki eru meðal þeirra.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira