Það verður áskorun að koma stöðunum fyrir, að sögn Óla, þar sem nú eru starfsleyfiskvótar í gildi í miðborginni, sem segja til um hve mikið af einni starfsemi má þrífast á hverjum stað. „Kvótarnir eru langerfiðastir á Laugaveginum og Skólavörðustíg en eru miklu opnari í öðrum götum.“
Kvótarnir eru fullnýttir á nokkrum stöðum í miðborginni sem þýðir að ekki er hægt að opna fleiri veitingastaði þar. „Ég held að þeir einu sem hagnist verulega á þessu séu húseigendur sem eiga hús með dýrmætan kvóta. Ef menn vilja opna veitingastað þá þurfa menn að borga háa leigu og oft mikil lyklagjöld til þess að komast inn á markaðinn,“ segir Jón Mýrdal veitingamaður, sem rekur barina Húrra og Bravó og vinnur að því að opna sjávarréttastað við Lækjargötu 6. Jón bendir á að í húsinu hafi verið veitingastaður fyrir og því hafi veitingaleyfi hússins verið nýtt.

„Ég er ekki sjálfur hrifinn af þessu. Ég held að markaðurinn væri betri til að finna út úr þessu en kvótar,“ segir Jón, en að hann hafi þó skilning á því að það verði að vera fjölbreytt starfsemi í miðborginni.
Óli segir kvótunum hafa verið komið á til að tryggja fjölbreytni í miðborginni. Hins vegar sé hópur á vegum Reykjavíkurborgar að störfum við að endurskoða stefnu miðborgarinnar, þar séu starfsemiskvótarnir meðal annars undir.
„Vonandi eigum við eftir að upplifa það að veitingastaðirnir fari að teygja sig aðeins og færa sig aðeins út úr meginkjarnanum. Þannig að við fáum fleiri svæði sem verða með veitingastaði,“ segir Óli.
Hann segir enn hægt að bæta við veitingastöðum á mörgum svæðum í miðborginni, til að mynda við höfnina, á Hverfisgötu og á svæðinu við Hlemm og í átt að Borgartúni. Þá sé starfsemi við miðborgartorg undanþegin kvótum.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir borgaryfirvöld ekki hafa tekið tillit til mannfjöldabreytinga í miðborginni. „Þessir kvótar eru orðnir mjög gamlir, þeir eiga uppruna sinn að rekja til ársins 2002,“ segir Júlíus. „Það hefur svo gríðarlega margt breyst í Reykjavík frá þeim tíma, þá aðallega vegna þeirra ferðamanna sem hingað koma.“
Júlíus hefur vakið máls á þessu innan borgarstjórnar og í umhverfis- og skipulagsráði og að þetta verði að endurskoða.