Lúpínan farin að sækja á hálendið Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. júlí 2015 07:00 Víðast hvar er lúpínan farin að vaxa mjög þétt upp að öðrum gróðri. Landgræðslustjóri hvetur fólk til að dreifa henni ekki. fréttablaðið/ernir
Sveinn Runólfsson Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri telur að lúpínan sé að breiða meira úr sér eftir því sem árin líða. „Já, ég held það. Þetta magnast ár frá ári,“ segir Sveinn. Jurtin finnist sífellt á nýjum stöðum og þá breiði hún úr sér þar. „Ég sé ekkert breyta þeirri þróun í sjálfu sér.“ Sveinn segir lykilatriði að stöðva útbreiðsluna á hálendinu. „Það er hægara um vik og þar á hún alls ekki heima,“ segir Sveinn. Á öðrum stöðum sé hægt að planta í hana og nýta hana þannig. Sveinn segir ekki ráðlegt að drepa lúpínuna með því að eitra fyrir henni, betra sé að slá hana og reyta á réttum tíma. „Við erum með afar athyglisverðar prófanir á eyðingu hennar í samstarfi við Stykkishólmsbæ. Það eru nú ekki komnar neinar niðurstöður úr því en þó er nú heldur hagstæðara að sleppa eitrinu og slá og reyta á hárréttum tíma,“ segir Sveinn. Þetta þýðir að það þurfi að slá og reyta hana áður en hún fer að fella fræ. Lúpínan fellir fræ í lok júlí. Sveinn segir að það hafi verið auðveldara fyrir lúpínuna að breiða úr sér í sumar, vegna þess að hún byrjar að vaxa á undan öðrum gróðri á vorin. „Þannig að hún fékk gott forskot í ár. Þegar annar gróður var lítt kominn af stað þá hélt hún sínu striki,“ segir Sveinn og bendir á að lúpínan sé mjög harðger planta. Þá bendir Sveinn á að skógarkerfillinn sé víða að sækja inn í lúpínuna. Skógarkerfillinn er algjörlega gagnslaus og mjög hvimleiður, að mati Sveins. „Hann skapar engan ríkan jarðveg eins og lúpínan gerir,“ segir hann. Sveinn segist ekki hafa hugmynd um hvaðan skógarkerfillinn komi, en grunur leiki á að fólk dreifi lúpínunni. „Við teljum að því miður séu einhverjir enn þá að dreifa lúpínu með fræi eða plöntum. En ég trúi því ekki að nokkur einasti maður dreifi skógarkerfli vegna þess að hann er skaðræði,“ segir Sveinn.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira