Sakfelldur fyrir fíkniefnasölu á síðunni „Meistari Kush“ Bjarki Ármannsson skrifar 24. mars 2015 20:16 Maðurinn seldi fíkniefni á Facebook-síðunni „Meistari Kush“ ásamt félaga sínum. Vísir/Valli
Maður á þrítugsaldri var í dag sviptur ökuréttindum ævilangt og dæmdur í sjö mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Maðurinn seldi fíkniefni á Facebook-síðunni „Meistari Kush“ ásamt félaga sínum og var tvisvar staðinn að því að keyra bíl sviptur ökuleyfi.Fíkniefni og reiðufé fundust við húsleit Samkvæmt skýrslu lögreglu fór lögregla að húsi mannsins í Reykjavík þann 4. mars 2014 vegna ábendinga um að margir hefðu lagt leið sína þangað undanfarinn sólarhring. Talið var að sala fíkniefna færi fram á staðnum. Í skýrslunni greinir frá því að þegar lögregluþjónar komu inn á stigagang hússins hafi heyrst mikið rifrildi úr íbúð mannsins, þannig að skilja mætti að átök ættu sér stað, og þeir því farið inn í íbúðina. Maðurinn var ásamt sambýliskonu sinni í íbúðinni og heimilaði leit lögreglu. Við þá leit fannst efni sem reyndist vera amfetamín, hass, kókaín og marijúana. Einnig fundust samtals rúmlega níu hundruð þúsund krónur í reiðufé víðsvegar um íbúðina ásamt tveimur farsímum, sem grunur lék á að notaðir væru við sölu fíkniefna. Í skýrslunni segir að lögregla hafi einnig fundið leigusamning um bílskúr annars staðar í borginni. Maðurinn hafi í fyrstu ekki viljað kannast við leigu sína á skúrnum en hafi gengist við henni eftir að lögregla tjáði honum að hún myndi kanna það hvort lyklar í hans fórum gengju að skúrnum. Eftir leit í íbúðinni fór lögregla að bílskúrnum og fann þar mikið magn marijúana.Myndefni samsvaraði því á síðu „Meistara Kush“ Farsímanúmerin tvö voru sett í hlustun en þau komu bæði fram á Facebook-aðgangi „Meistara Kush“ þar sem fíkniefni voru auglýst til sölu. Maðurinn var svo handtekinn þann 8. apríl eftir að hlustun númeranna leiddi í ljós að hann ætlaði að hitta tvo kaupendur við bensínstöð Olís við Skúlagötu. Gripið var inn í söluferlið en maðurinn hljóp yfir Sæbraut þegar hann varð var við lögreglu og henti í sjóinn fíkniefnum, en eitthvað af þeim fannst. Þá fundust ætluð fíkniefni á honum. Farið var með manninn að heimili hans þar sem meira fannst af fíkniefnum og rúmlega 250 þúsund krónur í reiðufé. Við leitina fundust einnig í tölvu mannsins myndir og myndskeið sem samsvaraði þeim sem voru inni á síðu „Meistara Kush.“ Á einu myndskeiðinu mátti jafnframt sjá hönd með fæðingarbletti sem kom heim og saman við blett á hönd mannsins handleika fíkniefni. Í niðurstöðum dómara kemur fram að maðurinn á að baki sakaferil frá árinu 2004 en á þeim tíma hefur hann níu sinnum hlotið dóm. Hann var svo í dag dæmdur til þess að sæta fangelsi í sjö mánuði, sviptur ökuréttindum ævilangt og til að greiða rúmlega 879 þúsund krónur í sakarkostnað. Fíkniefni sem haldlögð voru við rannsókn málsins voru gerð upptæk til ríkissjóðs.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Innlent Fleiri fréttir Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Sjá meira